Talsmaður ríkisflugfélagsins Emirates blæs á sögusagnirnar um að flugfélagið stefni á beint flug frá Dúbaí til Keflavíkur. Fyrr í vikunni var greint frá því að flugfélagið hefði nýlega kannað möguleika á að tengja Ísland inn í umfangsmikla leiðakerfi sitt og er hermt að fulltrúi hafi verið sendur til landsins til að kanna innviði á sviði flugrekstrar.
Í samtali við Arabian Business segir talsmaður flugfélagsins að þó fyrirtækið vilji halda öllum möguleikum opnum til að bæta stöðu sína, séu engar áætlanir séu að hefja starfsemi á Ísland að svo stöddu.
Floti Emirates samanstendur af breiðþotum sem hafa mikla flugdrægni. Ekkert flugfélag í heiminum heldur úti jafn mörgum A380- risabreiðþotum og Emirates en í flota þess eru yfir 100 slíkar vélar. Heimavöllur Emirates er alþjóðaflugvöllurinn í Dúbaí en um hann fara u.þ.b. 90 milljónir farþega á ári hverju.