„Það eru heldur betur tíðindi sem biðu mín þegar ég kom heim úr frábæru fríi. Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu er beðinn að hlutast til um að ráðuneytinu verð send öll gögn málsins og athugasemdir nefndarinnar við kæruna ef einhverjar eru.“
Þetta segir í opinni færslu frá Vigdísi Hauksdóttur borgarfulltrúa, en hún kærði úrskurð kjörnefndar, sem skipuð var af sýslumanninum, til dómsmálaráðuneytisins. Kjörnefnd sýslumanns vísaði máli hennar frá í þarsíðustu viku, en það snýst um úrskurð Persónuverndar um framkvæmd borgarstjórnarkosninga í Reykjavík í fyrra. Taldi Vigdís að með úrskurðinum hafi verið gefin heimild til að stunda „kosningsvindl“ svo framarlega sem það komist ekki upp innan sjö daga.
Í fæslu sinni segir Vigdís að nú ráðuneytið muni ekki senda kæruna aftur til Kjörnefndar og er útlit fyrir því að það taki kæruna sjálft til efnismeðferðar. Vigdís tekur þessum fregnum fagnandi og segir hún:
„Hér er brotið blað í sögunni og er ég afar stolt að hafa haldið þessu máli til streitu.“
Þá deilir Vigdís erindinu sem dómsmálaráðuneytið sendi Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu:
„Ráðuneytinu hefur borist meðfylgjandi kæra Vigdísar Hauksdóttur, á úrskurði nefndar sem þér skipuðuð samkvæmt annarri málsgrein 93. greinar laga nr. 5/1998 um kosninga til sveitarstjórna og kveðinn var upp 24. júní síðastliðinn. Vegna kærunnar er þess óskað að þér hlutist til um að ráðuneytinu verði send öll gögn málsins og athugasemdir nefndarinnar við kæruna ef einhverjar eru. Þess er óskað að umrædd gögn og athugasemdir berist eigi síðar en 19. júlí næstkomandi.“