KD7 er í eigu félagsins K9 Kringlan ehf. en það er í eigu athafnamannsins Sverris Einars Eiríkssonar sem þekktur er fyrir ansi skrautlega viðskiptasögu sína. Hann hefur verið gullsali, stundað demantaviðskipti, keypt málverk og starfrækt smálánastarfsemi.
Á árunum fyrir hrun rak hann starfsmannaleiguna Proventus sem var með um 80 pólska starfsmenn hérlendis þegar mest lét. Um mitt sumar 2009 var félagið úrskurðað gjaldþrota en lífeyrissjóðurinn Gildi gerði 40 milljóna króna kröfu í búið.
Sverrir hefur einnig verið viðriðinn veitingastaði. Hann rak pizzustaðinn Gamla Smiðjan en þá komst hann í fréttirnar fyrir að rukka óánægðan viðskiptavin um leigu. Hann er fyrrverandi eigandi Þrastalundar en þegar hann var við stjórnina vakti það athygli að 750ml af vatni kostaði 750kr.
Það vakti athygli árið 2017 þegar Þak byggingafélag ehf. hóf sölu á íbúðum með 95% láni en Sverrir var þá framkvæmdastjóri og eigandi Þaks.