fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Eyjan

Vatnajökulsþjóðgarður á heimsminjaskrá UNESCO

Ritstjórn Eyjunnar
Föstudaginn 5. júlí 2019 12:53

Mynd-vatnajokulsthjodgardur.is

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Vatnajökulsþjóðgarður er kominn á heimsminjaskrá Menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNESCO). Ákvörðun þess efnis var tekin á fundi heimsminjanefndar UNESCO í Bakú í Aserbaídsjan í dag á grundvelli þess að þjóðgarðurinn hafi að geyma einstakar náttúruminjar. Þar með er staðfest að náttúra þjóðgarðsins og friðlandsins í Lónsöræfum teljist hafa einstakt gildi fyrir mannkynið.

Þetta kemur fram í tilkynningu sem Mennta- og menningarmálaráðuneytið sendi frá sér. Tilkynninguna má lesa hér að neðan.

Svæðið er einstakt á heimsvísu vegna sköpunarkrafta náttúrunnar, samspils elds og íss og þeirrar jarðfræðilegu fjölbreytni sem af því leiðir og er sýnileg á yfirborði þjóðgarðsins. Landsvæðið sem um ræðir er afar stórt og um 12% Íslands eru þannig komin á heimsminjaskrá UNESCO sem einstakar náttúruminjar.

Tillaga ríkisstjórnarinnar um að Vatnajökulsþjóðgarði yrði bætt á heimsminjaskrána var afhent skrifstofu heimsminjasamningsins í París í lok janúar 2018. Frá þeim tíma hefur tillagan verið til gaumgæfilegrar skoðunar og úttektar hjá Alþjóðlegu náttúruverndarsamtökunum IUCN sem eru heimsminjanefndinni til aðstoðar við að meta heimsminjagildi, upprunaleika, heilleika og verndarstöðu staða sem tilnefndir eru á skrána vegna náttúrufars. Auk þess að vera viðurkenning á einstakri náttúru Vatnajökulsþjóðgarðs á heimsvísu er ákvörðun heimsminjanefndarinnar viðurkenning á þeirri ákvörðun íslenskra stjórnvalda að stofna þennan víðfeðma þjóðgarð og mikilvægur stuðningur við verndun og stjórnun svæðisins.

Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra: „Þetta er dýrmætt skref fyrir okkur Íslendinga sem án efa verður lyftistöng fyrir svæðið og orðspor þess. Við berum ábyrgð á þessu stórbrotna landi, ekki aðeins fyrir okkur sjálf – heldur heiminn og framtíðina. Ég fagna þessum mikilvæga áfanga og þakka þeim fjölmörgu sem unnið hafa ötullega að þessu markmiði undanfarin ár.“

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra: „Náttúra svæðisins sem nú fer inn á heimsminjaskrána er stórbrotin – með ævintýralegum hraunmyndunum, svörtum söndum, fágætum gróðurvinjum, víðernum sem eiga sér fáa líka, minjum um stórkostleg hamfarahlaup og jöklum sem geyma ótrúlega sögu og endurspegla um leið loftslagsvána. Afar óvenjulegt er að svo stór hluti lands sé á heimsminjaskrá UNESCO. Þetta er sannarlega gleðidagur.“

Heimsminjasamningur Menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNESCO) um verndun menningar- og náttúruarfleifðar heimsins grundvallast á þeirri forsendu að ákveðnir staðir á jörðinni hafi sérstakt alþjóðlegt gildi og eigi sem slíkir að tilheyra sam­eigin­legri arfleifð mannkynsins. Með samningnum viðurkenndu ríki nauðsyn verndunar þar sem það er talið skaða arfleifð allra þjóða heims ef einhver hluti hinnar menningarlegu eða náttúrulegu arfleifðar spillist eða hverfur.  Ísland á þegar tvo staði á heimsminjaskránni, Þingvelli (2004) og Surtsey (2008).

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Varaþingmaður Samfylkingarinnar yfirgefur flokkinn – Segir Samfylkinguna hafa sofnað á mannréttindavaktinni

Varaþingmaður Samfylkingarinnar yfirgefur flokkinn – Segir Samfylkinguna hafa sofnað á mannréttindavaktinni
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Sjálfstæðismenn aðeins einu sinni fengið sinn forseta – sá var fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins

Ólafur Þ. Harðarson: Sjálfstæðismenn aðeins einu sinni fengið sinn forseta – sá var fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Óttar Guðmundsson skrifar: Óæskilegt lesefni

Óttar Guðmundsson skrifar: Óæskilegt lesefni
Eyjan
Fyrir 6 dögum

800 milljóna halli en þokast í rétta átt

800 milljóna halli en þokast í rétta átt
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Þorsteinn Siglaugsson skrifar: Gervigreind og máttur tungumálsins

Þorsteinn Siglaugsson skrifar: Gervigreind og máttur tungumálsins