Á fundi borgarráðs í gær var lagt til að við nýja útisundlaug í Úlfarsárdal yrði reist sjö metra há vatnsrennibraut, byggð á tillögu VA arkitekta. Frumkostnaðaráætlun gerir ráð fyrir að vatnsrennibrautin og uppsetning hennar kosti 200 milljónir króna.
Starfshópi um uppbygginguna verður falið að vinna nánari útfærslu á vatnsrennibrautinni og lendingarlaug í samráði við íþrótta- og tómstundasvið.
Ekki var gert ráð fyrir vatnsrennibraut við byggingu sundlaugarinnar, en ÍTR bárust ábendingar um að það myndi „auka afþreyingargildi“ hinnar nýju sundlaugar ef þar yrði komið fyrir vatnsrennibraut, sem gerði sundlaugina um leið fjölskylduvænni.
Mikil uppbygging hefur staðið yfir í Úlfarsárdal, og mun standa yfir næstu ár þar sem nýr leikskóli, grunnskóli, menningarmiðstöð, inni- og útisundlaug og íþróttahús hafa risið og munu rísa, en segja má að hverfið hafi verið sett í frost í kjölfar hrunsins.
Áætlaður heildarkostnaður uppbyggingarinnar eru tæpir 12 milljarðar króna.