fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Eyjan

Fjöldi þingmála komst ekki á dagskrá þingsins fyrir sumarleyfi og fjölda fyrirspurna er ósvarað

Kristján Kristjánsson
Föstudaginn 21. júní 2019 08:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Alþingi lauk störfum í gær og þingmenn fóru í sumarfrí. Fjármálaáætlun var samþykkt með atkvæðum stjórnarþingmanna en þingmenn Pírata, Samfylkingar og Viðreisnar voru á móti. Þingmenn Miðflokksins og Flokks fólksins sátu hjá. Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, segir niðurstöðuna góða miðað við þær breyttu aðstæður sem eru í efnahagskerfinu.  Gjaldþrot WOW air og önnur slæm tíðindi hafi orðið til þess að nýlegar hagspár hafi verið teknar til endurskoðunar.

Fréttablaðið skýrir frá þessu í dag. Fram kemur að ekki hafi náðst að ljúka meðferð allra þeirra mála sem ríkisstjórnin lagði fram á nýloknum þingvetri og einnig eigi forsætisnefnd þingsins eftir að ljúka málum. Þar á meðal er að taka afstöðu til kvörtunar Ásmundar Friðrikssonar undan Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur. Siðanefnd þingsins komst að þeirri niðurstöðu í maí að Þórhildur hefði brotið gegn siðareglum þingsins með ummælum um Ásmund.

Ekki náðist að ljúka afgreiðslu frumvarps um þjóðarsjóð en það var tilbúið til annarrar umræðu. Skiptar skoðanir eru um málið og var fjórum sérálitum skilað um það í meðförum þingnefndar.

Þá áttu ráðherrar eftir að svara 162 spurningum þingmanna. Ekki er útilokað að svör við einhverjum þeirra hafi borist þinginu síðar í sumar þegar ljúka á umræðum um þriðja orkupakkann.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Afleiðing forsetaframboðs Katrínar er að Bjarni Ben er orðinn forsætisráðherra

Ólafur Þ. Harðarson: Afleiðing forsetaframboðs Katrínar er að Bjarni Ben er orðinn forsætisráðherra
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Þegar þjóðin hafnaði stjórnmálamanni – Endurtekur sagan sig?

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Þegar þjóðin hafnaði stjórnmálamanni – Endurtekur sagan sig?
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Verður spútnikframbjóðandinn himnasending kosninganna?

Orðið á götunni: Verður spútnikframbjóðandinn himnasending kosninganna?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þrír milljarðar í súginn og þögnin ærandi – „Með öllu óskiljanlegt og ríkisstjórn Íslands til ævarandi skammar“

Þrír milljarðar í súginn og þögnin ærandi – „Með öllu óskiljanlegt og ríkisstjórn Íslands til ævarandi skammar“