fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Eyjan

Þessi verkefni fengu styrk úr Jafnréttissjóði Íslands

Ritstjórn Eyjunnar
Miðvikudaginn 19. júní 2019 18:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Styrkjum úr Jafnréttissjóði Íslands fyrir árið 2019 var úthlutað við hátíðlega athöfn í Hörpu í dag. Markmið sjóðsins er að styrkja verkefni og rannsóknir sem miða að því að efla jafnrétti í íslensku samfélagi og á alþjóðavísu. Alls bárust 76 umsóknir en úthlutað var tæplega 91 milljón krónum í styrki til 17 verkefna og rannsókna.

Þrjú verkefni hlutu hvert um sig 9 milljóna króna styrki sem eru hæstu styrkirnir að þessu sinni. Dr. Tinna Laufey Ásgeirsdóttir, prófessor í hagfræði fær styrk til verkefnisins Verðmat miska vegna kynferðislegrar áreitni. Stígamót hlaut styrk vegna verkefnisins Sjúk ást sem er átak sem samtökin standa fyrir og er forvarnaverkefni gegn ofbeldi og beinist að ungu fólki á aldrinum 13 – 20 ára. Dr. Silja Bára Ómarsdóttir fékk styrk til rannsóknarinnar Árangur gegn alþjóðlegu bakslagi – þungunarrof á Íslandi og Írlandi.

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, flutti ávarp við athöfnina og sagði m.a.:

„Þekking er undirstaða þess að við getum skilgreint og framkvæmt þau nauðsynlegu verkefni sem miða að réttlátara samfélagi. Jafnréttissjóður hefur meðal annars það hlutverk að tryggja þekkingarsköpun á sviði kynjarannsókna sem eru grundvöllur vandaðrar stefnumótunar í málaflokknum.”

Forsætisráðherra minnti í máli sínu á þau tímamót þegar íslenskar konur fengu kosningarrétt í tveimur áföngum árin 1915 og 1920 og fjallaði um baráttu þeirra kvenna sem unnu ötult hugsjónastarf þegar þær kvöddu sér hljóðs um mikilvægi jafnréttis kvenna og karla til menntunar og atvinnu. Fremst fór Bríet Bjarnhéðinsdóttir, sem árið 1907 stofnaði Kvenréttindafélag Íslands. Í upphafi vakti málflutningur hennar andúð og gagnrýni samtíðarmanna en hann varð áður en yfir lauk grunnurinn að mikilsverðu framlagi til íslenskrar lýðræðisþróunar.

Jafnréttissjóður Íslands var stofnaður 19. júní 2015 með samþykkt þingsályktunar í tilefni af 100 ára kosningaréttarafmæli íslenskra kvenna. Megintilgangur sjóðsins er að fjármagna eða styrkja verkefni og rannsóknir sem miða að því að efla jafnrétti kynjanna í íslensku samfélagi og á alþjóðavísu. Jafnréttissjóður Íslands nýtur framlaga af fjárlögum í fimm ár, 100 milljóna króna á ári, frá ársbyrjun 2016 til ársloka 2020.

Í samræmi við ályktun Alþingis og úthlutunarreglur sjóðsins leggur stjórn hans áherslu á að veita fé til verkefna sem m.a. hafa að markmiði að efla jafnrétti á vinnumarkaði, varpa ljósi á samfélags- og efnahagslegan ávinning af jafnrétti, vinna gegn kynbundnu ofbeldi, styðja við þróunarverkefni í skólakerfinu, hvetja ungt fólk til aukinnar samfélagsþátttöku og stjórnmálastarfs og varpa ljósi á stöðu kynjanna jafnt í samtíð sem fortíð.

• Listi yfir styrkþega

 

Titill Nafn Veitt þús. kr.
Help-seeking for Trauma Healing among Icelandic Survivors of Gender-Based Violence Karen Birna Þorvaldsdóttir 6.000
Upplifun karla sem beitt hafa ofbeldi í nánum samböndum Rannveig Ágústa Guðjónsdóttir 6.000
Reynsla íslenskra kvenna af úrvinnslu og leiðum til eflingar eftir kynbundið ofbeldi Hulda Sædís Bryngeirsdóttir 6.000
Immigrant Mothers’ Pursuit of Higher Education: An Intersectional Analysis Cynthia Trililani 6.000
Sexual Harassment and Violence in the Work Enviornment: A Nationwide Study Among Icelandic Women Edda Björk Þórðardóttir 5.000
Árangur gegn alþjóðlegu bakslagi – þungunarrof á Íslandi og Írlandi Silja Bára Ómarsdóttir 9.000
Ungar konur og íslenskar sjávarbyggðir: samfélagsáhrif og búsetuval Gréta Bergrún Jóhannesdóttir 6.000
Kvenréttindafélag Íslands, Safnrit úr sögu kvennabaráttunnar á Íslandi Kvenréttindafélag Íslands 5.000
Verðmat miska vegna kynferðislegrar áreitni og kynbundins ofbeldis Tinna Laufey Ásgeirsdóttir 9.000
Kjör, lífskilyrði og staða innflytjendakvenna í láglaunastörfum á almennum og opinberum markaði Mirra fræðslu- og rannsóknarsetur 6.000
Ásta Sigurðardóttir: málþing og greinasafn Sigrún Margrét Guðmundsdóttir 4.500
Sjúkást Stígamót 9.000
Kvennafrí og kvennaverkföll: Íslensk kvennahreyfing og alþjóðleg áhrif hennar Valgerður Pálmadóttir 5.500
Kvennaráðgjöfin í samstarfi við Bjarmahlíð á Akureyri Kvennaráðgjöfin 1.200
Bandamenn – Námskeið fyrir karla sem vilja beita sér í baráttunni gegn ofbeldi gegn konum Stígamót,samtök kvenna 4.000
Kvennaathvarf fyrir konur með fjölþættan vanda – Faglegur undirbúningur Samtök um kvennaathvarf 1.800
Hvernig á að spyrja um kyn? Vaka Vésteinsdóttir 900
Samtals 90.900
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Inga Sæland herská – Kallar eftir stuðningi á þingpöllunum

Inga Sæland herská – Kallar eftir stuðningi á þingpöllunum
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Guðjón Auðunsson: Verðið á íslensku fasteignafélögunum er allt of lágt

Guðjón Auðunsson: Verðið á íslensku fasteignafélögunum er allt of lágt
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Björn Jón skrifar: Grýlur sem ýla hræðilega

Björn Jón skrifar: Grýlur sem ýla hræðilega
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Guðjón Auðunsson: Ef markmiðið er að fækka um eina kaffivél er sameiningin tilgangslaus

Guðjón Auðunsson: Ef markmiðið er að fækka um eina kaffivél er sameiningin tilgangslaus