fbpx
Þriðjudagur 23.apríl 2024
Eyjan

Lífeyrissjóður verzlunarmanna vísar á bug yfirlýsingum um annarlegan tilgang vaxtahækkana

Ágúst Borgþór Sverrisson
Miðvikudaginn 19. júní 2019 17:15

Höfuðstöðvar Lífeyrissjóðs verslunarmanna eru í Kringlunni 7.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lífeyrissjóður verzlunarmanna segir yfirlýsingar um að stjórn lífeyrissjóðsins hafi eingöngu verið að hækka vexti lána byggja á veikum grunni. Bendir stjórnin meðal annars á nýlega lækkun á föstum verðtryggðun vöxtum á sama tíma og breytilegir vestir verðtryggða sjóðfélagalána voru hækkaðir. Farið er yfir málið í fréttatilkynningu frá stjórninni:

 

HAGSMUNIR SJÓÐFÉLAGA OG LÁNTAKENDA ÆTÍÐ AÐ LEIÐARLJÓSI

Vegna umfjöllunar um vaxtabreytingar hjá Lífeyrissjóði verzlunarmanna, vill stjórn sjóðsins koma eftirfarandi á framfæri.

Fastir verðtryggðir vextir á lánum sjóðsins voru nýverið lækkaðir úr 3,6% niður í 3,4% og á sama tíma voru breytilegir vextir verðtryggðra sjóðfélagalána hækkaðir úr 2,06% í 2,26%. Vextir á stórum hluta lána voru því lækkaðir í takt við þær áherslur sem fram komu í nýgerðum kjarasamningum og með hliðsjón af lækkandi raunvaxtaumhverfi.  Stóryrtar yfirlýsingar um að stjórn lífeyrissjóðsins hafi einungis verið að hækka vexti lána, byggja því á afar veikum grunni, svo ekki sé dýpra í árinni tekið.

Breytilegir vextir verðtryggðra lána breytast þann 1. ágúst næstkomandi af þeirri einföldu ástæðu að þeir voru bundnir við úrelt viðmið, sem í raun þýddi að vextirnir voru orðnir óeðlilegir. Vaxtaviðmiðið hafði miðast við breytingu á ávöxtunarkröfu ákveðins skuldabréfaflokks hjá Íbúðalánasjóði (HFF150434) en viðskipti með þann flokk höfðu minnkað það mikið að viðmiðið var ekki lengur talið eðlilegt eða raunhæft.  Því var ákveðið að miða við ávöxtunarkröfu ríkisskuldabréfa og samanburðarhæfra skuldabréfa, ásamt þeim vaxtakjörum sem eru á markaði, að teknu tilliti til áhættumats.

Fastir verðtryggðir vextir lána sjóðsins eru nú með þeim allra lægstu sem bjóðast á Íslandi og breytilegir vextir lána hans þeir þriðju lægstu á markaði. Á sama tíma er rétt að minna á að breytilegir vextir, þýða einmitt að þeir séu breytilegir og það eftir aðstæðum hverju sinni.

Sjóðfélagar með réttindi í Lífeyrissjóði verzlunarmanna eru um 170 þúsund talsins. Lántakendur sjóðfélagalána með breytilega verðtryggða vexti eru um 3.700 talsins. Stjórn sjóðsins ber skylda til að gæta hagsmuna allra sjóðfélaga og ávaxta iðgjöld þeirra með besta mögulega hætti í þeim tilgangi að tryggja þeim sem bestan lífeyri. Það samræmist illa þessari afdráttarlausu skyldu að taka hagsmuni 3.700 lántaka framyfir allan þorra sjóðfélaga með því að festa vexti sem eiga samkvæmt ákvæðum skuldabréfanna að vera breytilegir.

Ákvarðanir um vaxtabreytingar tekur sjóðurinn ætíð með hagsmuni sjóðfélaga og lántakenda að leiðarljósi, aldrei af græðgi, geðþótta, illkvittni eða til að ganga í berhögg við kjarasamninga.

Eftir áðurnefndar breytingar býður Lífeyrissjóður verzlunarmanna afar samkeppnishæf og hagstæð vaxtakjör en sinnir um leið þeirri lögbundnu skyldu sinni að  tryggja sem best traustan grunn undir lífeyri tugþúsunda félaga sjóðsins.

Yfirlýsingum um annarlegan tilgang eðlilegra vaxtabreytinga er vísað til föðurhúsanna.

F.h. stjórnar Lífeyrissjóðs verzlunarmanna

Ólafur Reimar Gunnarsson, stjórnarformaður

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 2 dögum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að
Eyjan
Fyrir 5 dögum

„Vilt ekki að það sé eitt barn í fjölskyldunni sem er vanrækt á kostnað hinna“

„Vilt ekki að það sé eitt barn í fjölskyldunni sem er vanrækt á kostnað hinna“
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Guðjón Auðunsson: Áhyggjur af því að áhrif vaxtahækkana eigi eftir að bíta almenning alvarlega

Guðjón Auðunsson: Áhyggjur af því að áhrif vaxtahækkana eigi eftir að bíta almenning alvarlega