fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Eyjan

Minni samdráttur í kortaveltu en fjölda ferðamanna

Ritstjórn Eyjunnar
Miðvikudaginn 12. júní 2019 08:51

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í maímánuði dróst erlend kortavelta án flugsamgangna saman um 13,1% á milli ára og nam 16,2 milljörðum króna. Hlutfallsleg lækkun í kortunum er nokkuð minni en fækkun ferðamanna samkvæmt talningu Ferðamálastofu og Isavia en hún var 24% frá sama mánuði í fyrra. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Rannsóknarsetri verslunarinnar.

Fall WOW air er vafalaust stærsti einstaki þátturinn sem veldur lækkun kortaveltunnar frá fyrra ári. Tölur Rannsóknasetursins sýna kortaveltuna án flugsamgangna og mæla því ekki bein áhrif minni miðakaupa þess flugfélags heldur þau óbeinu áhrif sem felast í fækkun ferðamanna.

Gengi krónunnar hefur veikst um u.þ.b. 12% frá maí í fyrra. Innlendar ferðaafurðir sem seldar eru í krónum eru því þeim mun ódýrari í augum erlendra ferðamanna en fyrir ári síðan. Sé lækkun kortaveltunnar í mánuðinum reiknuð í erlendri mynt lætur nærri að hver ferðamaður hafi að eytt svipaðri fjárhæð hérlendis samanborið við maí í fyrra. Í íslenskum krónum jókst aftur á móti kortavelta á hvern ferðamann um 13,6%.

Verulegur hluti þess sem útlendingar greiða fyrir hérlendis með kortum sínum fer í gegn um netsölu. Sá hluti er oftar en ekki pöntun fram í tímann á þjónustu sem neyta á síðar. Það er því athyglisvert að skoða netsöluna í maí síðastliðnum sérstaklega enda gæti hún gefið vísbendingar um sumarið. Samdráttur í kortaveltu í gegn um posa nam tæplega 17% en samdráttur um net var rúmlega 5%. Stærsti flokkurinn í netsölu, bæði hlutfallslega og mælt í veltu er ýmis ferðaþjónusta en hann inniheldur afþreyingaferðir, ferðaskipuleggjendur og álíka. Um 70% kortaveltu flokksins kemur í gegn um netið (2,5 ma.kr.) og dróst sá hluti einungis saman um tæpt eitt prósent frá fyrra ári, samanborið við ríflega 16% samdrátt sama flokks í gegn um posa. Gæti þetta verið til marks um að hlutfallslegur samdráttur verði minni þegar líður á sumarið en raungerðist í maí.

Þrátt fyrir samdrátt kortaveltu í flestum flokkum þá jókst velta verslunar í maí um 7,1% og nam 2,6 milljörðum. Sé litið á einstakra undirflokka verslunar, þá eru það dagvara og fataverslun ásamt flokknum önnur verslun sem ýta undir hækkun milli ára. Kortavelta í dagvöruverslunum jókst um 8,3% á milli ára og nam 889 millj. kr. Þá jókst fataverslun erlendra ferðamanna um 4,3% á milli ára og nam 424,7 millj. kr. Verslun í gjafa- og minjagripaverslunum dróst þá saman um 16,4% á milli ára.

Samdráttur varð í heildarveltu korta nánast allra þjóðerna. Kortavelta bandarískra ferðamanna nam í maí rúmum 6,5 milljörðum króna. Á sama tíma í fyrra var heildarvelta þeirra tæpir 7,3 milljarðar og nemur lækkunin 10,1% á milli ára. Svipaða sögu er að segja af kortaveltu ferðamanna frá Bretlandi, nam samdrátturinn þar 15,7% á milli ára.

Rannsóknasetur verslunarinnar birtir mánaðarlega tölur um greiðslukortaveltu ferðamanna sundurliðaða eftir útgjaldaliðum og útgáfulandi korta. Gögnunum er enn fremur skipt eftir því hvort um er að ræða erlend eða innlend greiðslukort. Gögnin innihalda færslur bæði debet- og kreditkorta. Birtar eru upphæðir í íslenskum krónum ásamt hlutfallsbreytingum frá fyrri mánuði og sama mánuði fyrra árs. Gögnin eru fengin frá innlendum færsluhirðingaraðilum, sundurliðuð eftir svonefndum MCC kóðum. MCC kóðarnir eru aftur greindir í flokka eftir því hvernig þeir eru taldir tengjast mismunandi greinum ferðaþjónustu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt