fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Eyjan

Hagsmunasamtök heimilanna hjóla í Þjóðskrá – „Hér hefur eitthvað farið stórkostlega úrskeiðis!“

Ritstjórn Eyjunnar
Þriðjudaginn 11. júní 2019 12:54

Ásthildur Lóa Þórsdóttir, formaður Hagsmunasamtaka heimilanna og þingmaður Flokks fólksins

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hagsmunasamtök heimilanna segja Alþingi hafa fengið rangar upplýsingar þegar svar dómsmálaráðherra við fyrirspurn Ólafs Ísleifssonar þingmanns Miðflokksins, um nauðungarsölur, fjárnám og gjaldþrot hjá einstaklingum árið 2018, var birt á vef Alþingis 31. maí síðastliðinn. Var það Þjóðskrá sem sá um úrvinnsluna.

„Í svarinu sem unnið er af Þjóðskrá, eru birtar tölur yfir árin 2008 – 2018 sem eru því miður rangar hvað varðar nauðungarsölur og koma alls ekki heim og saman við upplýsingar sem aflað var beint frá embættum sýslumanna samkvæmt svari við sambærilegri fyrirspurn 15. ágúst 2018.

Því hefur nú verið slegið upp í fjölmiðlum að nauðungarsölur hjá einstaklingum hafi einungis verið 69 árið 2018 samkvæmt þessum nýju tölum, sem er algjörlega fráleitt. Einföld talning á vef sýslumanna leiðir í ljós að 446 framhaldsuppboð voru auglýst árið 2018. Það er því ljóst að eitthvað hefur farið verulega úrskeiðis við úrvinnslu Þjóðskrár,“

segir í tilkynningu frá Hagsmunasamtökum heimilanna.

Þar kemur fram að samanburður á þessum tveimur svörum dómsmálaráðherra sýni að í tölum þessara ára hafi verið yfir 6.500 nauðungarsölur vantaldar í gögnum Þjóðskrár:

„Svo dæmi sé tekið voru nauðungarsölur flestar árið 2010 eða 1.574 talsins samkvæmt upplýsingum frá sýslumannsembættunum sjálfum, en samkvæmt tölum Þjóðskrár eru þær sagðar hafa verið einungis 13 það ár.“

Annað í lagi

Aðrar tölur í umræddu svari samræmast þó fyrri upplýsingum, samkvæmt tilkynningunni. Samkvæmt þeim hefur lítið dregið úr fjárnámum hjá einstaklingum sem voru yfir tólf þúsund árið 2018 og þar af hátt í tíu þúsund árangurslaus. Á tímabilinu 2008-2018 voru því samtals gerð um 164.000 fjárnám og þar af um 127.000 árangurlaus. Jafnframt er ekkert lát á gjaldþrotum einstaklinga sem voru 312 árið 2018 og fjölgaði um 22 frá fyrra ári, en samtals hafa 3.284 einstaklingar orðið gjaldþrota á tímabilinu.

„Þessar tölur ættu að fá alla til að staldra við. Það er ekkert eðlilegt við tölur af þessari stærðargráðu í 350.000 manna samfélagi. Hér hefur eitthvað farið stórkostlega úrskeiðis! Hagsmunasamtök heimilanna harma þau mistök sem hljóta af hafa orðið við samantekt Þjóðskrár varðandi nauðungarsölur og hafa farið fram á leiðréttingu frá stofnuninni auk þess sem þau beina því til dómsmálaráðherra að sjá til þess að Alþingi fái réttar upplýsingar sem fyrst.“

Samanburður á tölum frá sýslumannsembættum og Þjóðskrá um nauðungarsölur hjá einstaklingum 2008-2018

 

Ártal

Sýslumenn

Þjóðskrá

Mismunur

2008

549

9

540

2009

778

9

769

2010

1.574

13

1.561

2011

1.306

11

1.295

2012

1.273

9

1.264

2013

1.349

1.008

341

2014

568

449

119

2015

675

590

85

2016

547

438

109

2017

227

168

59

2018

446

69

377

Samtals *

9.292

2.773

6.519

* Auk þess hafa a.m.k. 349 fasteignir verið seldar vegna greiðsluaðlögunar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Afleiðing forsetaframboðs Katrínar er að Bjarni Ben er orðinn forsætisráðherra

Ólafur Þ. Harðarson: Afleiðing forsetaframboðs Katrínar er að Bjarni Ben er orðinn forsætisráðherra
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Þegar þjóðin hafnaði stjórnmálamanni – Endurtekur sagan sig?

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Þegar þjóðin hafnaði stjórnmálamanni – Endurtekur sagan sig?
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Verður spútnikframbjóðandinn himnasending kosninganna?

Orðið á götunni: Verður spútnikframbjóðandinn himnasending kosninganna?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þrír milljarðar í súginn og þögnin ærandi – „Með öllu óskiljanlegt og ríkisstjórn Íslands til ævarandi skammar“

Þrír milljarðar í súginn og þögnin ærandi – „Með öllu óskiljanlegt og ríkisstjórn Íslands til ævarandi skammar“