fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
Eyjan

ASÍ skorar á sveitarfélögin að standa við yfirlýsingar sínar

Ritstjórn Eyjunnar
Þriðjudaginn 11. júní 2019 10:37

Drífa Snædal, forseti ASÍ

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Í tilefni þess að nú liggur fyrir fasteignamat fyrir næsta ár ætlast Alþýðusamband Íslands til þess að sveitarfélög standi við yfirlýsingar gefnar í tengslum við kjarasamninga í apríl og lækki álagsprósentur fasteignaskattsins vegna ársins 2020. Þannig má koma í veg fyrir að hækkun fasteignamats skili sér sjálfkrafa í skattahækkun til almennings í gegnum hærri álagningu,“

segir í tilkynningu frá ASÍ. Þar er rifjað upp að launafólk á almennum vinnumarkaði hafi gengið til samninga og samþykkt þá með því fororði að hið opinbera legðist á árarnar með aðilum vinnumarkaðarins við að halda aftur af útgjaldaaukningu heimila landsins:

„Stoðirnar undir þeim samningum voru yfirlýsingar stjórnvalda, þar með talin yfirlýsing Sambands íslenskra sveitarfélaga. Nú þegar hefur það sveitarfélag þar sem fasteignamat hækkar mest, Akranes, lýst því yfir að skatthlutfallið verði lækkað þannig að ekki komi til skattahækkunar á heimili. Við fögnum því og hvetjum önnur sveitarfélög til að axla ábyrgð og standa með launafólki til að markmið nýgerðra kjarasamninga um aukinn kaupmát, lága verðbólgu og lægri vexti og nái fram að ganga. ASÍ mun í framhaldinu fylgjast vel með gjaldskrábreytingum sveitarfélaganna og viðbrögðum þeirra við hækkun fasteignamats.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Óttar Guðmundsson skrifar: Óæskilegt lesefni

Óttar Guðmundsson skrifar: Óæskilegt lesefni
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Trúnaði aflétt af leynilegu minnisblaði um meint spillingarmál – „Hlýtur að teljast vafasamt“

Trúnaði aflétt af leynilegu minnisblaði um meint spillingarmál – „Hlýtur að teljast vafasamt“
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Verður spútnikframbjóðandinn himnasending kosninganna?

Orðið á götunni: Verður spútnikframbjóðandinn himnasending kosninganna?
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Þrír milljarðar í súginn og þögnin ærandi – „Með öllu óskiljanlegt og ríkisstjórn Íslands til ævarandi skammar“

Þrír milljarðar í súginn og þögnin ærandi – „Með öllu óskiljanlegt og ríkisstjórn Íslands til ævarandi skammar“
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Þorsteinn Siglaugsson skrifar: Gervigreind og máttur tungumálsins

Þorsteinn Siglaugsson skrifar: Gervigreind og máttur tungumálsins
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Notum tímann núna

Þorsteinn Pálsson skrifar: Notum tímann núna