fbpx
Fimmtudagur 18.apríl 2024
Eyjan

„Það er kominn tími til að stjórnmálamenn vippi sér yfir í nútímann“ segir Kolbrún

Kristján Kristjánsson
Fimmtudaginn 6. júní 2019 08:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Of margir stjórnmálamenn hér á landi lifa í þeim misskilningi að það sé sérstakt hlutverk þeirra að hafa gætur á almenningi og setja honum alls kyns skorður. Þessi hópur stjórnmálamanna hefur takmarkaða trú á skynsemi almennings en því meiri trú á öllum mögulegum höftum.“

Svona hefst grein, undir fyrirsögninni Af hverju ekki?, eftir Kolbrúnu Bergþórsdóttur í Fréttablaðinu í dag. Í henni fjallar Kolbrún um stjórnmálamenn og tregðu þeirra til að leyfa sölu á bjór og léttvíni í matvöruverslunum.

„Dæmi um þetta er viðhorf þessa hóps til sölu á bjór og léttvíni í matvöruverslunum, en forsjárhyggju-stjórnmálamennirnir mega ekki til þess hugsa að sú sjálfsagða þjónusta standi landsmönnum til boða. Í huganum sjá þeir þjóðina afvelta á fylliríi og æsku landsins farna í hundana. Hafa landsmenn ekki heyrt þetta áður? Ójú, það hafa þeir, því þetta er alveg sama svartnættisrausið sem var endurtekið í tíma og ótíma þegar umræðan um að leyfa bjórsölu hér á landi stóð sem hæst. Æskan átti að leiðast á glapstigu við það eitt að aðgangur að bjór yrði gerður auðveldur, vinnustundir áttu að glatast vegna dagdrykkju hins vinnandi manns og helgarfylliríin áttu að verða enn ógnvænlegri en áður. Ekkert af þessu gekk eftir.”

Segir Kolbrún og bætir við að það sé hvimleitt þegar því sé haldið að þjóðinni að hún sé allt annarrar gerðar en aðrar þjóðir og því henti það engan veginn hér á landi sem tíðkast erlendis.

„Rökin eru aldrei skýr, það eina sem er fullljóst er að einstaklingum er ekki treyst og því þurfi valdið að koma að ofan. Þannig er jafnvel talið stórhættulegt hér á landi að fólk geti keypt sér rauðvínsflösku í sömu verslun og það kaupir kótiletturnar eða mjólkina. Þetta gera Íslendingar þó í utanlandsferðum og þykir ósköp þægilegt. Ekki nema von að sífellt fleiri landsmenn spyrji af hverju þeir geti ekki gert þetta sama hér á landi.“

Segir Kolbrún og víkur síðan að nýlegri könnun Maskínu á viðhorfi fólks til sölu bjórs og léttvíns í matvöruverslunum.

„Aldrei hafa fleiri verið hlynnt sölu á bjór í mat vöruverslunum en einmitt nú. Munurinn er svo sem ekki ýkja mikill. Rúmlega 44 prósent eru hlynnt sölu léttvíns í mat vöruverslunum og um 42 prósent andvíg. Um 45 prósent eru hlynnt sölu á bjór og 41 prósent er andvígt. Stórum hópi landsmanna finnst greinilega kominn tími til að hafna forsjárhyggju-hugsuninni sem hér hefur verið við lýði í þessum málum í alltof langan tíma.”

Segir Kolbrún og víkur að endingu að þjóðarvilja og gamaldags hugsunarhætti stjórnmálamana.

„Andstæðingar þess að heimilt verði að selja vín og bjór í almennum verslunum hafa óspart vísað til þess að vilji þjóðarinnar sé skýr, hún vilji hafa þessi höft. Þessi nýja skoðanakönnun sýnir að vilji þjóðarinnar er nokkur annar en andstæðingarnir hafa talið hann vera. Könnunin sýnir líka að yngra fólk er líklegra en þeir sem eru sextugir og eldri til að vera fylgjandi því að bjór og léttvín verði til sölu í matvöruverslunum. Þetta unga fólk vill búa í opnu þjóðfélagi, án hafta, og kemur vitanlega ekki auga á rökin fyrir því að geta ekki gripið með sér rauðvínsflösku eða bjórkippu um leið og það kaupir í matinn. Slíkt frelsi býður engri hættu heim. Það er kominn tími til að stjórnmálamenn vippi sér yfir í nútímann.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Björn Jón skrifar: Grýlur sem ýla hræðilega

Björn Jón skrifar: Grýlur sem ýla hræðilega
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Guðjón Auðunsson: Ef markmiðið er að fækka um eina kaffivél er sameiningin tilgangslaus

Guðjón Auðunsson: Ef markmiðið er að fækka um eina kaffivél er sameiningin tilgangslaus