fbpx
Fimmtudagur 18.apríl 2024
Eyjan

Ferðamönnum fækkaði í maí

Ritstjórn Eyjunnar
Fimmtudaginn 6. júní 2019 20:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Brottfarir erlendra farþega  frá landinu um Keflavíkurflugvöll voru um 126 þúsund í maímánuði eða um 39 þúsund færri en í maí árið 2018, samkvæmt talningu Ferðamálastofu og Isavia. Fækkun milli ára nemur 23,6%, samkvæmt tilkynningu.

Fækkun hefur verið alla mánuði frá áramótum, í janúar fækkaði brottförum um 5,8%, í febrúar um 6,9%, í mars um 1,7% og í apríl um 18,5%.

Bandaríkjamenn voru fjölmennastir í maí eða fjórðungur brottfara og fækkaði þeim um 38,7% milli ára. Brottfarir í maí í ár eru álíka margar og í maí árið 2016.

Frá áramótum hafa 705 þúsund erlendir farþegar farið frá Íslandi um Keflavíkurflugvöll sem er 11,2% fækkun miðað við sama tímabil í fyrra.

Fjölmennustu þjóðernin

Af einstaka þjóðernum voru flestar brottfarir í maí tilkomnar vegna Bandaríkjamanna sem fyrr segir. Þjóðverjar voru í öðru sæti hvað fjölda varðar eða níu þúsund talsins og fækkaði þeim um 23,8% milli ára og Bretar í þriðja sæti eða tæplega níu þúsund og fækkaði þeim um 16%.

Þar á eftir fylgdu síðan brottfarir Pólverja (6,5% af heild), Kanadamanna (4,6% af heild), Frakka (4,6% af heild), Kínverja (3,4% af heild), Norðmanna (3,3% af heild), Svía (3,3% af heild) og Dana (3,2% af heild).

Ferðir Íslendinga utan

Um 57 þúsund Íslendingar fóru utan í maí í ár eða 9,3% færri en í maí 2018. Frá áramótum hafa 185 þúsund Íslendingar farið utan eða 1,8% færri en á sama tímabili í fyrra.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Björn Jón skrifar: Grýlur sem ýla hræðilega

Björn Jón skrifar: Grýlur sem ýla hræðilega
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Guðjón Auðunsson: Ef markmiðið er að fækka um eina kaffivél er sameiningin tilgangslaus

Guðjón Auðunsson: Ef markmiðið er að fækka um eina kaffivél er sameiningin tilgangslaus