fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Eyjan

Ragnar Þór fullur þakklætis í garð Miðflokksins en segir aðstæður þingmanna „óviðunandi og ómannúðlegar“

Ritstjórn Eyjunnar
Föstudaginn 24. maí 2019 11:53

Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, sendir Miðflokknum baráttukveðjur á Facebook í dag, fyrir að standa vaktina í baráttunni gegn þriðja orkupakkanum, en eins og kunnugt er hafa þingmenn Miðflokksins sett hvert metið á fætur öðru þegar kemur að málþófi í þinginu, nú síðast í morgun þegar þingfundur stóð til rúmlega níu í morgun.

Ragnar segir aðstæður þingmanna vera ómannúðlegar:

„Ég sendi baráttukveðjur til þeirra þingmanna sem standa vaktina fyrir mig og börnin mín, dag og nótt, við algjörlega óviðunandi og ómannúðlegar aðstæður, á vinnutíma sem varla getur talist boðlegur í nútíma samfélagi, í því að koma í veg fyrir að 3 Orkupakkinn verði samþykktur. Ég vil koma á framfæri þakklæti fyrir staðfestu þeirra í þessu máli sem varðar svo mikla hagsmuni fyrir þjóðina og afkomendur okkar.“

Þá skorar Ragnar Þór á ríkisstjórnina að fresta málinu:

„Ég skora jafnframt á ríkisstjórnina að fresta málinu fram á haust og bið um að þjóðin fái andrými til að kynna sér málið betur. Við kjósendur hljótum að geta gert þá kröfu þegar svo stór og umdeild mál, er snúa að auðlindum þjóðarinnar og grunnstoðum samfélagsins, eru til umfjöllunar og hafa ekki fengið efnislega umræðu í aðdraganda kosninga. Okkur getur varla legið svo mikið á að ekki megi slá þessu á frest til haustsins.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Afleiðing forsetaframboðs Katrínar er að Bjarni Ben er orðinn forsætisráðherra

Ólafur Þ. Harðarson: Afleiðing forsetaframboðs Katrínar er að Bjarni Ben er orðinn forsætisráðherra
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Þegar þjóðin hafnaði stjórnmálamanni – Endurtekur sagan sig?

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Þegar þjóðin hafnaði stjórnmálamanni – Endurtekur sagan sig?
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Verður spútnikframbjóðandinn himnasending kosninganna?

Orðið á götunni: Verður spútnikframbjóðandinn himnasending kosninganna?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þrír milljarðar í súginn og þögnin ærandi – „Með öllu óskiljanlegt og ríkisstjórn Íslands til ævarandi skammar“

Þrír milljarðar í súginn og þögnin ærandi – „Með öllu óskiljanlegt og ríkisstjórn Íslands til ævarandi skammar“