Líkt og Eyjan greindi frá í morgun, þá skrifaði Ragnar Önundarsson færslu um forystu Sjálfstæðisflokksins í dag hvar hann segir Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur, ritara og þingmann flokksins, vera „sætan krakka.“
Sjá nánar. Ragnar gerði það aftur:„Glæsilegasta konan er varaformaður og sætasti krakkinn ritari“
Er þetta í annað skiptið sem Ragnar kemst í sviðsljósið fyrir að gera útlit Áslaugar Örnu að umtalsefni, en Áslaug hefur nú brugðist við á Twitter, hvar hún segir:
„Það er alveg ljóst að Ragnar Ön hefur einhvern óeðlilegan áhuga á að gramsa í myndum á fb hjá mér. Í pistli dagsins kallar hann mig „sætasta krakkann“ og birtir með tveggja ára gamla mynd. Síðast var gamla myndin of sexý svo ég mætti tjá mig um #metoo. Hvað næst?#ekkiveraragnar“
Það er alveg ljóst að Ragnar Ön hefur einhvern óeðlilega áhuga á að gramsa í myndum á fb hjá mér. Í pistli dagsins kallar hann mig "sætasta krakkann" og birtir með tveggja ára gamla mynd. Síðast var gamla myndin of sexý svo ég mætti tjá mig um #metoo. Hvað næst?#ekkiveraragnar
— Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir (@aslaugarna) May 20, 2019