fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Eyjan

Hvenær kviknar líf?

Ritstjórn Eyjunnar
Laugardaginn 18. maí 2019 14:14

Jón Steinar Gunnlaugsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jón Steinar Gunnlaugsson skrifar

Það hefur verið sorglegt að fylgjast með athafnasemi Alþingis að undanförnu við að rýmka heimildir til fóstureyðinga. Nú skal barnshafandi móðir geta án sérstakra skilyrða mælt fyrir um eyðingu fósturs síns til loka 22. viku meðgöngu. Með þessu eru Íslendingar komnir lengra fram í líftíma fóstursins með þessi mörk, heldur en nær allar aðrar þjóðir í kringum okkur.

Sú var tíðin þegar rætt var um fóstureyðingar að margir töldu að líf barns kviknaði við getnaðinn. Eftir það ætti sér einungis stað vöxtur á líkama og þroska. Voru þá margir þeirrar skoðunar að ekki skyldi leyfa fóstureyðingar nema við alveg sérstakar aðstæður, svo sem ef ofbeldisverk hefði leitt til þungunar eða móður og barni væri alvarleg hætta búin af meðgöngu. Svona talar enginn lengur. Persónulegt frelsi barnshafandi konu er ekki talið leyfa það. Það á þannig að falla undir persónulegt frelsi að fá án skilyrða að deyða líf sem kviknað hefur ef óskir móður falla í þá átt.

Þrátt fyrir þetta voru óheftar heimildir til að eyða fóstri fyrir breytinguna miðaðar við miklu skemmri líftíma þess en nú er orðið, þar sem kvenfrelsisbaráttan, eins og þetta er kallað, hélt áfram. Í stjórnarskrá okkar er veitt sérstök vernd fyrir mannslíf. Þannig segir í 2. mgr. 69. gr. hennar að í lögum megi aldrei mæla fyrir um dauðarefsingu. Spurning er hvenær líf manneskjunnar kvikni og öðlist þannig vernd, m.a. þá sem þarna er kveðið á um? Mætti í lögum mæla fyrir um dauðarefsingu fósturs sem talið væri ógna lífi móður sinnar ef svo stæði á að hún vildi ekki deyða fóstrið? Dæmið er sjálfsagt ekki raunhæft en er samt þess eðlis að vert er að leita fræðilegs svars við þessu. Það ætti að vera til þess fallið að auka skilning okkar á málefninu.

Hvort er verra?

Menn geta spurt sig hvort þeim þyki verra að beita dauðarefsingum á hættulegustu stórglæpamenn eða svipta saklaus börn lífi sem hafið hafa lífshlaupið, þó að ekki hafi ennþá séð dagsljós. Þó að ég sé sjálfur andvígur dauðarefsingum ætti ég ekki í neinum vandræðum með að svara þessu fyrir mig.

Í 21. gr. erfðalaga er svo að finna svofellt ákvæði: „Barn, sem getið er, áður en arfleifandi fellur frá, tekur arf eftir hann, ef það fæðist lifandi.“ Hér er ljóst að ófætt barn getur átt réttindi, þó að þau séu bundin því skilyrði að barnið fæðist lifandi.

Í ljós hefur komið að til er fólk sem telur að leyfa eigi fóstureyðingu (miklu?) lengur fram á líftíma fósturs en nú var ákveðið. Sjálfur forsætisráðherra þjóðarinnar hefur látið hafa eftir sér að hún styðji slík sjónarmið. Kannski hún vilji leyfa eyðingu á fóstri alveg fram að fæðingu, eins og sést hefur að sumt fólk virðist vilja? Hvers vegna að stoppa þar? Fyrr á tíð brugðust konur við vandamálum sem þær stóðu frammi fyrir vegna barnsfæðinga með því að bera börnin út eftir fæðingu þeirra. Enginn þarf að efast um erfið lífsskilyrði þeirra kvenna sem til slíkra ráða gripu. Vilja einhverjir taka upp sambærilega hætti nú? Til dæmis forsætisráðherrann?

Nú til dags vita menn hvernig börn verða til. Er ekki bara ráðlegt að þær konur, sem ekki vilja eignast börn, beiti sjálfsákvörðunarrétti sínum þannig að ekki sé hætta á að þær verði barnshafandi? Ég bara spyr.

 

Jón Steinar Gunnlaugsson er lögmaður

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Björn Jón skrifar: Ótrúlegur árangur íslenskra tæknifyrirtækja

Björn Jón skrifar: Ótrúlegur árangur íslenskra tæknifyrirtækja
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að
Eyjan
Fyrir 1 viku

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Lindarhvoll: Leyndarhyggjan enn við lýði – svör berast seint, illa eða ekki

Lindarhvoll: Leyndarhyggjan enn við lýði – svör berast seint, illa eða ekki