fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Eyjan

Krefjast þess að smálánaþegar fari af vanskilaskrá: „Vilji löggjafans er skýr. Ólögleg smálán eiga ekki að líðast“

Erla Dóra Magnúsdóttir
Föstudaginn 10. maí 2019 10:57

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Neytendasamtökin gagnrýna Creditinfo fyrir að leyfa smálánafyrirtækjum að beita vanskilaskrá gegn neytendum til að knýja fram greiðslu á ólöglegum vöxtum. Þetta kemur fram í ályktun samtakanna.

Margir aðilar sem hafa endað á vanskilaskrá Creditinfo vegna smálána hafa snúið sér til Neytendasamtakanna.

„Í kjölfarið hafa Neytendasamtökin upplýst Creditinfo að smálánafyrirtækin og innheimtuaðilar þeirra nota Creditinfo sem svipu til að fá þá til að borga lán með ólöglegum vöxtum. Þá er með ólíkindum að Creditinfo verði við óskum þessara fyrirtækja sem brjóta lög og siðferði.“

Neytendasamtökin beina þeim kröfum til Creditinfo að þeir láti af því að skrá einstaklinga, sem ekki greiði af ólöglegum smálánum, á vanskilaskrá. Að sama bragði gera þeir kröfu um að allir þeir sem þegar eru skráðir á vanskilaskrá vegna slíkra lána verði teknir af listanum

Sér í lagi þar sem Hákon Stefánsson, stjórnarmaður Creditinfo group hefur opinberlega skorað á fólk að greiða ekki þessi lán.

Einnig fara samtökin fram á að Creditinfo hættu að beita svo nefndri öfugri sönnunarbyrði.

Það á ekki að líðast að einstaklingar, sem oft þekkja ekki rétt sinn og geta ekki borið hönd fyrir höfuð sér, þurfi að andmæla kröfum sem byggja á ólöglegum lánveitingum, ella lendi þeir á vanskilaskrá og dúsi þar í allt að fjögur ár.

Creditinfo hefur mikil völd yfir fjárhagsupplýsingum og fjárhagslegri framtíð fólks og þeim verður að fylgja samfélagsleg ábyrgð. Dómar hafa fallið um ólögmæti smálána, úrskurðir Neytendastofu eru skýrir og vilji löggjafans er skýr. Ólögleg smálán eiga ekki að líðast.“

Neytendasamtökin telja ljóst að smálánafyrirtæki geti aðeins starfað í skjóli fyrirtækja sem greiði götu þeirra.

„Þannig berst einstaklingum fjöldi smáskilaboða í gegnum símakerfið, auglýsingar frá smálánafyrirtækjum birtast í kvikmyndahúsum og í fjölmiðlum, innheimtufyrirtæki taka að sér að innheimta ólöglegar kröfur og smálánafyrirtækin nýta greiðslumiðlunarkerfi fjármálakerfisins. Til eigenda, stjórnenda og starfsmanna þessara fyrirtækja beinir stjórn Neytendasamtakanna þeim tilmælum að sýna samfélagslega ábyrgð og hætta að styðja við smálánafyrirtækin.“

Neytendasamtökin hvetja félagsmenn sína sem og aðra sem eru á vanskilaskrá vegna smálána að senda beiðni á Creditinfo um að vera tafarlaust tekinn af skránni.

Við hvetjum félagsmenn og aðra sem lent hafa á vanskilaskrá Creditinfo vegna smálána að senda þeim beiðni um að láta taka sig af skránni og afmá öll ummerki um veru þar á mailto:creditinfo@creditinfo.is og setja mailto:ns@ns.is í cc.

Bréfið gæti litið svona út:
Til þess er málið varðar,
Ég lenti á vanskilaskrá vegna ólöglegra smálána. Vinsamlega takið mig af vanskilaskránni tafarlaust og afmáið öll ummerki um veru mína þar.
Vinsamlega verðið við beiðni minni sem fyrst og eigi síðar en að 10 dögum liðnum.
Virðingarfyllst,
Nafn. Xxxxx Xxxxx
Kennitala: xxxxxxxxxx

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Þegar þjóðin hafnaði stjórnmálamanni – Endurtekur sagan sig?

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Þegar þjóðin hafnaði stjórnmálamanni – Endurtekur sagan sig?
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ólafur Þ. Harðarson: Kosningarnar nú minna mjög á kosningarnar 1980 – spurningin hvort kjósendur kjósa taktískt

Ólafur Þ. Harðarson: Kosningarnar nú minna mjög á kosningarnar 1980 – spurningin hvort kjósendur kjósa taktískt
Eyjan
Fyrir 1 viku

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þrír milljarðar í súginn og þögnin ærandi – „Með öllu óskiljanlegt og ríkisstjórn Íslands til ævarandi skammar“

Þrír milljarðar í súginn og þögnin ærandi – „Með öllu óskiljanlegt og ríkisstjórn Íslands til ævarandi skammar“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Sigurður Amlín nýr rekstrarstjóri hjá Stöð 2

Sigurður Amlín nýr rekstrarstjóri hjá Stöð 2