fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Eyjan

Hörður: „Ríkisstjórnin á að leiða þriðja orkupakkann í lög og snúa sér að öðrum og mikilvægari málum“

Ritstjórn Eyjunnar
Föstudaginn 10. maí 2019 12:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Þótt halda mætti annað, miðað við allan æsinginn, þá er ekki mikil ástæða til að fara mörgum orðum um innihald þriðja orkupakkans. Fátt, ef nokkuð, felur þar í sér nein nýmæli fyrir Ísland,“ segir Hörður Ægisson, ritstjóri Markaðarins, í leiðara Fréttablaðsins í dag.

Þar skrifar Hörður um orkupakkann sem klofið hefur þjóðina í tvær fylkingar. Að mati Harðar er umræðan á nokkrum villigötum og segir hann að aðeins sé verið að skerpa á því regluverki sem nú þegar gildir. Regluverkið hafi verið innleitt fyrir rúmum fimmtán árum án mikillar mótstöðu og snúist í grunninn um aukið sjálfstæði eftirlitsstofnana og meiri neytendavernd. Sjálfur kallar Hörður eftir því að þriðji orkupakkinn verði leiddur í lög.

Ótvíræðir hagsmunir fyrir almenning

„Með öðrum orðum er tilgangurinn aukin og virkari samkeppni á orkumarkaði. Hagsmunirnir af slíku regluverki fyrir almenning og fyrirtæki eru ótvíræðir. Innleiðing þriðja orkupakkans á sér langan aðdraganda, sem margar ríkisstjórnir hafa komið að á síðustu árum, og Ísland hefur margsinnis haft tækifæri til þess að hafa áhrif á ákvörðunarferlið. Engin ríkisstjórn hefur hins vegar á neinu stigi málsins talið ástæðu til að beita sér gegn orkupakkanum. Andstaðan nú um stundir, drifin áfram af fyrrverandi áhrifamönnum í íslensku samfélagi sem eiga erfitt með að eftirláta sviðið nýrri kynslóð, vekur því um margt furðu,“ segir Hörður.

Taka þátt í að afvegaleiða almenning

Hann bætir svo við að mörgu af því sem haldið er fram í umræðunni standist enga skoðun.

„Dapurlegast er að sjá þá, sem vita flestir hverjir betur, taka þátt í að afvegaleiða almenning með röngum upplýsingum. Um hvað fjallar orkupakkinn ekki? Hann snýst á engan hátt um einkavæðingu eða frekari „markaðsvæðingu“ raforkugeirans en nú er. Því síður er Ísland að afsala sér forræði á því hvernig við nýtum orkuauðlindir landsins og ákvörðun um mögulega lagningu sæstrengs, sem mun krefjast samþykkis Alþingis, verður alfarið í okkar höndum. Um allt þetta er ástæðulaust að deila.“

Þá bendir Hörður á að þeir sem tala gegn þriðja orkupakkanum hafi látið að því liggja að málið eigi margt sameiginlegt með Icesave-málinu sem tröllreið þjóðinni eftir efnahagshrunið 2008.

„Þótt erfitt sé að átta sig á þeim samanburði þá grundvallast sú afstaða meðal annars á því sjónarmiði að gera eigi það tortryggilegt að nú, rétt eins og þá, sé um það breið samstaða á meðal stjórnmálamanna og atvinnulífsins að samþykkja orkupakkann. Höfum eitt á hreinu. Krafan um það að Íslendingar ættu að gangast undir löglausar kröfur Breta og Hollendinga, sem hefði hamlað endurreisn efnahagslífsins og gert afnám hafta erfiðara en ella, varðaði gríðarlega fjárhagslega hagsmuni Íslands. Sem betur fer tókst að afstýra þeim áformum. Engir slíkir hagsmunir eru undir í því máli sem varðar þriðja orkupakkann. Hér er aðeins verið að fiska í gruggugu vatni þar sem markmiðið virðist vera – í einhverjum óskilgreindum pólitískum tilgangi – að grafa undan EES-samstarfinu að óþörfu. Því má ekki láta ósvarað.“

„Næsta mál, takk“

Hörður segir að Ísland sé í einstakri stöðu og þrátt fyrir forystu ólíkra ríkisstjórna í gegnum árin hafi Íslandi farnast að leysa úr mörgum stórum og flóknum úrlausnarefnum.

„Verkefnið sem við stöndum núna frammi fyrir, rétt eins og Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, og Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri SA, sögðu í viðtali við Markaðinn í vikunni er að byggja á þeim grunni til að sækja fram og bæta lífskjör þjóðarinnar. Hvernig til tekst ræðst af samkeppnishæfni Íslands. Ríkisstjórnin á því að leiða þriðja orkupakkann í lög og snúa sér að öðrum og mikilvægari málum sem eiga að vera í forgrunni. Næsta mál, takk.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Afleiðing forsetaframboðs Katrínar er að Bjarni Ben er orðinn forsætisráðherra

Ólafur Þ. Harðarson: Afleiðing forsetaframboðs Katrínar er að Bjarni Ben er orðinn forsætisráðherra
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Þegar þjóðin hafnaði stjórnmálamanni – Endurtekur sagan sig?

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Þegar þjóðin hafnaði stjórnmálamanni – Endurtekur sagan sig?
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Verður spútnikframbjóðandinn himnasending kosninganna?

Orðið á götunni: Verður spútnikframbjóðandinn himnasending kosninganna?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þrír milljarðar í súginn og þögnin ærandi – „Með öllu óskiljanlegt og ríkisstjórn Íslands til ævarandi skammar“

Þrír milljarðar í súginn og þögnin ærandi – „Með öllu óskiljanlegt og ríkisstjórn Íslands til ævarandi skammar“