fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Eyjan

Könnun Maskínu: Mesta ánægjan með störf Lilju – Mesta óánægjan með Sigríði Andersen

Ritstjórn Eyjunnar
Miðvikudaginn 24. apríl 2019 15:29

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fleiri Íslendingar eru ánægðir en óánægðir með frammistöðu fimm af ellefu ráðherrum ríkisstjórnar Vinstri-grænna, Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks, samkvæmt könnun Maskínu.

Þeir ráðherrar eru Lilja Dögg Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra og Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra.

Flestir eru ánægðir með frammistöðu Lilju Daggar Alferðsdóttur (67,6%) og fæstir ánægðir með frammistöðu Sigríðar Á. Andersen (13,8%), en Sigríður steig til hliðar stuttu áður en könnunin var lögð fyrir. Mesta óánægjan er með störf Sigríðar Á. Andersen (65,8%) og Bjarna Benediktssonar (51,6%) og minnsta óánægjan er með frammistöðu Lilju Daggar Alfreðsdóttur (9,6%).

Almennt eru fleiri ánægðir með störf ríkisstjórnarinnar nú en í lok árs 2018. Meiri ánægja er með störf allra ráðherranna nú, að utanskilinni Sigríði Á. Andersen. Mesta aukning ánægju er með mennta- og menningarmálaráðherra þótt fólk hafi verið ánægðast með Lilju Dögg í lok árs 2018.

Töluverður munur er á viðhorfi til starfa ráðherra eftir því hvaða flokk svarendur myndu kjósa ef kosið yrði til Alþingis í dag. Þeir sem myndu kjósa Vinstihreyfinguna – grænt framboð eru ánægðastir með þá ráðherra sem koma úr flokknum, auk Lilju Daggar og það sama má segja um kjósendur Sjálfstæðsflokksins og Framsóknarflokksins sem almennt eru ánægðir með störf eigin ráðherra.

Kjósendur Pírata eru óánægðari en aðrir með störf Bjarna Benediktssonar, Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur, Sigurðar Inga Jóhannssonar og Ásmundar Einars Daðasonar. Þeir sem myndu kjósa Samfylkinguna eru óánægðari en aðrir með störf Sigríðar Á. Andersen, Kristjáns Þórs Júlíussonar og Guðlaugs Þórs Þórðarsonar.

Kynjamunur er á viðhorfi til fjögurra ráðherra: Karlar eru ánægðari með frammistöðu Bjarna Benediktssonar en konur en konur eru ánægðari með frammistöðu Svandísar Svavarsdóttur, Kristjáns Þórs Júlíussonar og Guðmundar Inga Guðbrandssonar.

Háskólamenntaðir eru ánægðari en aðrir með störf Katrínar Jakobsdóttur, Lilju Daggar Alfreðsdóttur og Guðmundar Inga Guðbrandssonar. Jafnframt eru háskólamenntaðir óánægðari en aðrir með störf Sigríðar Á. Andersen.

Svarendur voru 848 talsins, koma úr Þjóðgátt Maskínu, sem er þjóðhópur fólks (e. panel) sem er dreginn með tilviljun úr Þjóðskrá og svarar á netinu. Hver svarandi gat svarað spurningum um 7 ráðherra af 11 en tilviljun réð um hvaða ráðherra var spurt hverju sinni og í hvaða röð ráðherrarnir birtust svarendum. Svarendur eru af báðum kynjum, alls staðar að af landinu og á aldrinum 18 ára og eldri. Gögnin eru vigtuð með tilliti til kyns, aldurs og búsetu samkvæmt Þjóðskrá og endurspegla því þjóðina prýðilega. Könnunin fór fram dagana 15. til 27. mars 2019.

Skýrsluna í PDF formi má nálgast hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Þegar þjóðin hafnaði stjórnmálamanni – Endurtekur sagan sig?

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Þegar þjóðin hafnaði stjórnmálamanni – Endurtekur sagan sig?
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ólafur Þ. Harðarson: Kosningarnar nú minna mjög á kosningarnar 1980 – spurningin hvort kjósendur kjósa taktískt

Ólafur Þ. Harðarson: Kosningarnar nú minna mjög á kosningarnar 1980 – spurningin hvort kjósendur kjósa taktískt
Eyjan
Fyrir 1 viku

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þrír milljarðar í súginn og þögnin ærandi – „Með öllu óskiljanlegt og ríkisstjórn Íslands til ævarandi skammar“

Þrír milljarðar í súginn og þögnin ærandi – „Með öllu óskiljanlegt og ríkisstjórn Íslands til ævarandi skammar“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Sigurður Amlín nýr rekstrarstjóri hjá Stöð 2

Sigurður Amlín nýr rekstrarstjóri hjá Stöð 2