Sendiráð Hollands í Osló er í forsvari gagnvart Íslandi ásamt aðalkjörræðismanni í Reykjavík. Holland mun setja upp tímabundið sendiráð í Reykjavík frá 27. apríl til 2. maí 2019 til að leggja áherslu á góð tengsl við Ísland og til að sýna hinar mörgu hliðar á sambandi Íslands og Hollands, samkvæmt tilkynningu.
Á meðan tímabundna sendiráðið er opið mun Holland standa fyrir margvíslegum viðburðum sem sýna hin fjölbreyttu tengsl á milli Hollands og Íslands.
Tvíhliða viðræðufundir verða haldnir með stefnumótendum um fjölda viðfangsefna eins og stefnu í utanríkis- og öryggismálum, tengsl við Evrópu, jafnrétti kynjanna og mannréttindi. Málstofa með áherslu á sjálfbæra nýsköpun og hringrásarhagkerfið verður haldin í samstarfi við Reykjavíkurborg.
Hollenska knattspyrnusambandið KNVB mun standa fyrir námskeiði og málstofu með KSÍ sem er hluti af verkefninu „KNVB World Coaches“ með knattspyrnuhetjunni Johan Neeskens, sem komst á lista FIFA yfir 125 bestu fótboltamenn sögunnar árið 2004, en hann var talinn einn albesti miðjumaður heims í sínum tíma.
Sendiráðið mun skipuleggja tvo tónlistarviðburði sem verða opnir almenningi: djassaðan listgjörning með Udo Prinsen mánudaginn 29. apríl kl. 19:30 og tónleika með hollenskum nemendum við Konunglega listaskólann sem eru innblásnir af íslenskri goðafræði, með aðstoð frá Listaháskóla Íslands, þann 2. maí kl. 19:30. Báðir tónleikarnir verða haldnir í Iðnó, Vonarstræti 3, Reykjavík.
Tímabundna sendiráðið opnar skrifstofu sína fyrir ræðismannaþjónustu við hollenska ríkisborgara og veitir þeim færi á að sækja um hollensk ferðaskilríki í Reykjavík.
Íslensk fyrirtæki sem hafa áhuga á að stunda viðskipti í Hollandi fá tækifæri til þess að ræða við viðskiptasvið.