fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Eyjan

Vill að verkalýðshreyfingin stofni banka og tryggingafélag

Ritstjórn Eyjunnar
Þriðjudaginn 23. apríl 2019 13:10

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Verkalýðshreyfingin á ekki að láta nægja að byggja upp íbúðahúsnæðisfélögin Bjarg og Blæ, heldur ætti hún að halda áfram og stofna pöntunarfélög, tryggingafélög, banka og annan samfélagslega mikilvægan rekstur. Alþýðan hefur ekki þann einan kost að lifa innan hins kapítalíska fjárglæfrasamfélags heldur ætti það að verða markmið verkalýðshreyfingarinnar að byggja upp þjónustu og starfsemi sem gæfi alþýðufólki kost á að lifa og starfa án þess að þurfa nokkru sinni að reka nefið inn í kapítalísk fyrirtæki, sem ávallt vinna gegn hagsmunum almennings.“

Svo skrifar Gunnar Smári Egilsson, stofnandi Sósíalistafélags Íslands, við frétt þess efnis að Drífa Snædal, forseti ASÍ, íhugi að hvetja til sniðgöngu á vörum frá Íslenska Ameríska, sem boðað hefur verðhækkanir á vörum sínum verði kjarasamningar samþykktir.

Gunnar Smári segir að verkalýðsbaráttan eigi eftir að breytast mikið á næstu árum og áratugum, í ætt við það sem áður var:

„Fyrstu hálfu öldina stofnaði Alþýðusambandið allskyns fyrirtæki auk uppbyggingu alþýðuhúsa í svo til hverjum bæ, þar sem alþýðan byggði upp sitt menningar- og félagslíf innan samfélags sem ekki gerði ráð fyrir að þörf hennar fyrir sómasamlegt og innihaldsríkt líf. Verkalýðshreyfingin stofnaði Alþýðublaðið, Alþýðubrauðgerð, Alþýðubanka og alls konar; forystufólk hreyfingarinnar vissi að hlutverk verkalýðshreyfingarinnar var að byggja upp nýjan valkost innan samfélags sem sinntu engu hagsmunum og væntingum alþýðunnar.“

Gunnar Smári segir að klíku- og stofnanavæðing verkalýðshreyfingarinnar ásamt hinni alræmdu nýfrjálshyggju hafi  náð að beygja verkalýðsforystuna undir, að því leyti að engin valkostur væri í boði gagnvart óbeisluðum kapítalisma og hún hafi ekki talið sig geta gert betur en að hafa „mildandi áhrif á hug þeirra sem raunverulega stjórnuðu landinu; eigendur fyrirtækja og þess stjórnmálafólks og -flokka sem voru í vasanum á auðvaldinu.“

Segir Gunnar Smári að verkalýðshreyfingin þurfi að vakna upp af þessari martröð:

„Þetta var stærsta lygi nýfrjálshyggjunnar; að það væri enginn valkostur við þessa gagnbyltingarstefnu hinna ríku; að félagslegur rekstur samvinnufélaga, opinberra félaga, byggingasamvinnufélaga eða félaga á vegum alþýðusamtaka gætu aldrei boðið upp á neitt betra en einkafyrirtæki sem rekin væru til að færa eigendum sínum sem mestan arð; á endanum að draga sem mest fé upp úr rekstrinum (og flytja hann þaðan til Kýpur eða Panama). Verkalýðshreyfingin þarf að vakna upp af þessari martröð. Hreyfingin hefur bæði forsendur, þörf, aðstæður og afl til að byggja upp valkost gegn gerspilltum kapítalisma, sem ætíð fórnar samfélagslegum hagsmunum fyrir hagnað eigendanna (brýtur ekki bara niður samfélag heldur fórnar fyrir gróða eigendanna náttúru og lífsskilyrðum komandi kynslóða).“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Björn Jón skrifar: Ótrúlegur árangur íslenskra tæknifyrirtækja

Björn Jón skrifar: Ótrúlegur árangur íslenskra tæknifyrirtækja
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að
Eyjan
Fyrir 1 viku

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Lindarhvoll: Leyndarhyggjan enn við lýði – svör berast seint, illa eða ekki

Lindarhvoll: Leyndarhyggjan enn við lýði – svör berast seint, illa eða ekki