Við njótum góðrar vorkomu. Veður hefur verið milt, tún grænka óðum og tré laufgast. Á göngutúr í Laugarnesinu á páskadag sá ég tjald og hrossagauk. Svo hitti ég golfmann sem lofaði og prísaði veðurfarið – vellirnir koma miklu betur undan vetri en síðastliðin ár.
Hér fyrir ofan getur að líta spákortið fyrir sumardaginn fyrsta – það er hinn daginn. Þetta árið verða engir brandarar um sumardaginn frysta eða speki um að frjósi milli vetrar og sumars.
Ef spáin gengur eftir – ætli hafi nokkurn tíma verið einmuna veðurblíða á þessum séríslenska og ofurbjartsýna hátíðisdegi? Ég man aðallega eftir honum, allt frá barnsaldri, með kulda og næðingi og frosti í jörðu.
Þetta setti ég inn á Facebook fyrir tveimur árum – á sumardaginn fyrsta.