Lögmaðurinn Sveinn Andri Sveinsson, sem skipaður var skiptastjóri þrotabús WOW air, mun ekki víkja sem skiptastjóri, líkt og Arion banki fór fram á. Símon Sigvaldason héraðsdómari komst að þessari niðurstöðu í dag, en Arion banki taldi Svein Andra vanhæfan í málinu. Hafði Símon áður komist að þessari niðurstöðu í svari sínu til RÚV, en Arion banki vísaði málinu til héraðsdóms.
Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvort niðurstöðunni verði vísað til Landsréttar.
Mannlíf greindi frá því að meint vanhæfi Sveins Andra væri tilkomið vegna ágreinings Arion banka við Svein Andra í öðru máli, en Sveinn Andri var einnig skiptastjóri í þrotabúi Data Cell, sem Arion banki hefur gert kröfu til.
Arion banki er einn stærsti kröfuhafinn í þrotabú WOW air.
Samkvæmt upplýsingafulltrúa Arion banka mun bankinn fara fram á úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um stöðu Sveins Andra.
Valið á skiptastjórum í þrotabú hefur verið gagnrýnt af mörgum, þar sem engir verkferlar eða reglur gildi um hvernig sé staðið að slíku vali, heldur ráði kunningsskapur og klíka því að miklu leyti hverjir hljóti hnossið.
Sjá einnig: Óska eftir að Sveinn Andri verði settur af sem skiptastjóri WOW air vegna vanhæfni
Sjá einnig: Sveinn Andri situr sem fastast