fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Eyjan

Ísland fær að vera Iceland

Ritstjórn Eyjunnar
Föstudaginn 12. apríl 2019 08:40

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hugverkastofa Evrópusambandsins (EUIPO) hefur komist að þeirri niðurstöðu að vörumerkjaskráning bresku verslunarkeðjunnar Iceland Foods Ltd. á orðmerkinu Iceland í Evrópusambandinu sé ógild í heild sinni. Fyrirtækið hefur tvo mánuði til að áfrýja úrskurðinum, samkvæmt tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu.

Íslensk stjórnvöld, Íslandsstofa og Samtök atvinnulífsins ákváðu á sínum tíma að grípa til til lagalegra aðgerða gegn Iceland Foods Ltd., sem fékk árið 2014 orðmerkið Iceland skráð hjá Hugverkastofu Evrópusambandsins. Krafa Íslands var að þessi skráning Iceland Foods yrði ógilt, enda væri um þekkt landfræðilegt heiti að ræða og einnig að merkið Iceland væri almennt, sérkennalaust og hefði aldrei átt að fást skráð

„Ég fagna þessari niðurstöðu þótt hún komi mér ekki alls kostar á óvart enda gengur það gegn almennri skynsemi að erlent fyrirtæki geti slegið eign sinni á nafn fullvalda ríkis eins og þarna hefur verið gert. Hér er um að ræða áfangasigur í afar þýðingarmiklu máli fyrir íslensk útflutningsfyrirtæki. Landið okkar er þekkt fyrir hreinleika og sjálfbærni og því verðmæti fólgin í vísun til uppruna íslenskra vara,“

segir Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra.

Úrskurðurinn sem kveðin var upp síðastliðinn föstudag er afgerandi en fallist er alfarið á kröfur Íslands. Skráning Iceland Foods Ltd. á orðmerkinu Iceland hjá EUIPO er því ógilt í heild sinni. Sýnt hafi verið fram á með fullnægjandi hætti að neytendur í ESB-löndunum viti að Iceland sé land í Evrópu og og eins hafi landið sterk söguleg og efnahagsleg tengsl við ESB-ríkin ásamt landfræðilegri nálægð. Neytendur tengi merkið því við Ísland fyrir allar vörur og þjónustu sem undir skráninguna falla eða séu líklegir til að gera það í framtíðinni. Merkið sé þar af leiðandi fyrst og fremst lýsandi fyrir landfræðilegan uppruna og uppfylli ekki kröfur um sérkenni, sem er ein meginforsenda þess að vörumerki fáist skráð.

Iceland Foods Ltd. á eftir sem áður orð- og myndmerki sitt, svokallað „lógó“, skráð í Evrópu og víðar og getur haldið áfram að stunda viðskipti undir nafninu. Frestur Iceland Foods til að vísa málinu til áfrýjunarnefndar EUIPO rennur út 5. júní nk.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Í gær

Guðjón Auðunsson: Áhyggjur af því að áhrif vaxtahækkana eigi eftir að bíta almenning alvarlega

Guðjón Auðunsson: Áhyggjur af því að áhrif vaxtahækkana eigi eftir að bíta almenning alvarlega
Eyjan
Í gær

Jón Gnarr: Forseti tali íslensku á alþjóðavettvangi – íslenskan á að fá að hljóma

Jón Gnarr: Forseti tali íslensku á alþjóðavettvangi – íslenskan á að fá að hljóma
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Lýsa vantrausti á ríkisstjórnina, krefjast þingrofs og nýrra kosninga

Lýsa vantrausti á ríkisstjórnina, krefjast þingrofs og nýrra kosninga
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Mannréttindadómstóll Evrópu slær á puttana á íslenska ríkinu – Brutu gegn rétti til frjálsra kosninga

Mannréttindadómstóll Evrópu slær á puttana á íslenska ríkinu – Brutu gegn rétti til frjálsra kosninga
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ole Anton Bieltvedt skrifar: ESB er miklu meira en sameiginlegur markaður og evran

Ole Anton Bieltvedt skrifar: ESB er miklu meira en sameiginlegur markaður og evran
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Gamli kanslarinn vill fá skrifstofuna sína aftur – Ekki líklegt að það gangi eftir

Gamli kanslarinn vill fá skrifstofuna sína aftur – Ekki líklegt að það gangi eftir
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Sögusagnir sem borgin vísaði á bug eiga sér meiri stoð í raunveruleikanum en af er látið

Sögusagnir sem borgin vísaði á bug eiga sér meiri stoð í raunveruleikanum en af er látið
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Fylgið minnkað um helming – 40 þúsund vantreysta Bjarna sem sætir afarkostum VG

Orðið á götunni: Fylgið minnkað um helming – 40 þúsund vantreysta Bjarna sem sætir afarkostum VG