fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Eyjan

Barnaheill fékk fimm milljónir frá ríkinu

Ritstjórn Eyjunnar
Föstudaginn 12. apríl 2019 11:50

Stjórn Barnaheilla: Á myndinni eru f.v. Páll Valur Björnsson, Erna Reynisdóttir, Áslaug Björgvinsdóttir, Anni Haugen, Guðlaugur Kristmundsson, Harpa Rut Hilmarsdóttir, Atli Þór Albertsson, Brynja Dan Gunnarsdóttir, Helga Arnardóttir, Jón Ragnar Jónsson og Guðmundur Steingrímsson.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun að veita 5 millj. kr. af sameiginlegu ráðstöfunarfé sínu til Barnaheilla til að standa straum af samstarfsverkefni með UNICEF, umboðsmanni barna og Menntamálastofnun um fræðslu og útgáfu efnis um samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, samkvæmt tilkynningu.

Um er að ræða framlag til að standa straum af nýjum vef og öðru kynningarefni um Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Verkefnið er samstarfsverkefni Barnaheilla, UNICEF, umboðsmanns barna og Menntamálastofnunar.

Til stendur að hið nýja fræðsluefni verði bæði stafrænt og prentað, aðgengilegt á íslensku, ensku og pólsku. Skulu öll efnistök og áherslur taka mið af gildandi lögum og aðalnámskrám sem og þeim reglum sem samstarfsaðilar eru bundnir af í störfum sínum með börnum og fyrir þau. Menntamálastofnun mun jafnframt leggja til vinnu við verkefnið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Inga Sæland herská – Kallar eftir stuðningi á þingpöllunum

Inga Sæland herská – Kallar eftir stuðningi á þingpöllunum
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Guðjón Auðunsson: Verðið á íslensku fasteignafélögunum er allt of lágt

Guðjón Auðunsson: Verðið á íslensku fasteignafélögunum er allt of lágt
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Björn Jón skrifar: Grýlur sem ýla hræðilega

Björn Jón skrifar: Grýlur sem ýla hræðilega
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Guðjón Auðunsson: Ef markmiðið er að fækka um eina kaffivél er sameiningin tilgangslaus

Guðjón Auðunsson: Ef markmiðið er að fækka um eina kaffivél er sameiningin tilgangslaus