fbpx
Þriðjudagur 23.apríl 2024
Eyjan

Guðmundur segir einokunar- og einangrunarsinna allra flokka hafa sameinast – Sjá tækifæri til ÍSEXIT

Kristján Kristjánsson
Þriðjudaginn 9. apríl 2019 07:54

Guðmundur Andri Thorsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nú er hafin umræða á Alþingi um innleiðingu 3. orkupakkans. Lengi hefur verið titringur vegna hans og ekki ríkir einhugur innan margra flokka um ágæti pakkans. Hefur því verið haldið fram að með samþykkt hans afsali Íslendingar sér hluta fullveldisins til stofnana úti í heimi.

Guðmundur Andri Thorsson, þingmaður Samfylkingarinnar, ritar pistili í Fréttablaðið í dag undir fyrirsögninni ÍSEXIT? Í honum fjallar hann um einokunar- og einangrunarsinna allra flokka sem hafa nú sameinast og berjast gegn innleiðingu orkupakkans.

„Í fararbroddi eru gömlu valdakarlarnir sem færðu okkur einokunarkerfin í landbúnaði og sjávarútvegi og stóriðjustefnuna þar sem alþjóðlegir auðhringir fá orkuna úr fallvötnum okkar á gjafverði. Þetta eru ráðamennirnir sem tala um samfélagið okkar sem „ógeðslegt þjóðfélag“ þar sem allt snúist um völd og ekki séu til neinar hugsjónir. Þeim finnst það jafngilda fullveldisafsali þegar þeir ráða ekki öllu sjálfir.“

Segir Guðmundur um þá sem eru í fararbroddi andstöðunnar við orkupakkann umrædda og bætir við:

„Þeir kalla það landráð að hugsanleg ágreiningsmál í hugsanlegum viðskiptum milli landa séu útkljáð af alþjóðlegum stofnunum á borð við Mannréttindadómstólinn og EFTAdómstólinn sem dæmdi Íslendingum í hag í Icesave-málinu.“

Segir hann og víkur síðan að hugsanlegum álitamálum í kringum 3. orkupakkann:

„Álitamálin kringum 3. orkupakkann eru bundin því að einn góðan veðurdag komi til þess að íslensk orka verði hugsanlega einhvern tímann seld til útlanda gegnum hugsanlegan sæstreng – sem er með öllu óvíst. Og þyrfti sérstakt samþykki Alþingis til.“

Segir hann og veltir fyrir sér hvort það sé eitthvað skelfilegra að stunda viðskipti með orku en lambakjöt:

„Erfitt er hins vegar að átta sig á því hvers vegna viðskipti með orku eru svo miklu skelfilegri en til dæmis sala á lambakjöti: enginn talar um að við missum yfirráðin yfir íslenska lambakjötinu þegar við seljum það. Við verðum bara dauðfegin.“

Segir hann og bætir við að öllu skipti að þjóðin eigi sjálf sínar auðlindir og orkuveitur eins og Landsvirkjun.

„Sé þetta tryggt í lögum – eins og nýja stjórnarskráin gerir: af hverju má þá ekki selja hæstbjóðanda (að uppfylltum grænum skilyrðum) þær afurðir sem þessar auðlindir veita? Hér býr fleira undir en fölskvalaus ættjarðarást. Einangrunarsinnarnir sjá hér tækifæri til að stuðla að útgöngu Íslands úr EES, jafnvel EFTA. Stóri draumurinn er að skapa sérstakt ís-exit. Í samskiptum okkar við umheiminn eigum við að minnsta kosti aldrei að hafa að leiðarljósi tröllasögur og heimóttarskap.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 2 dögum

Sigmundur Ernir skrifar: Flokkurinn sem yfirgaf sjálfan sig

Sigmundur Ernir skrifar: Flokkurinn sem yfirgaf sjálfan sig
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Sjálfstæðismenn aðeins einu sinni fengið sinn forseta – sá var fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins

Ólafur Þ. Harðarson: Sjálfstæðismenn aðeins einu sinni fengið sinn forseta – sá var fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Lindarhvoll: Leyndarhyggjan enn við lýði – svör berast seint, illa eða ekki

Lindarhvoll: Leyndarhyggjan enn við lýði – svör berast seint, illa eða ekki
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Maskína: Alvarleg staða hjá 70 prósent þjóðarinnar – verðbólga og vextir vandinn

Maskína: Alvarleg staða hjá 70 prósent þjóðarinnar – verðbólga og vextir vandinn
Eyjan
Fyrir 4 dögum

800 milljóna halli en þokast í rétta átt

800 milljóna halli en þokast í rétta átt
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Jón Gnarr: Forseti tali íslensku á alþjóðavettvangi – íslenskan á að fá að hljóma

Jón Gnarr: Forseti tali íslensku á alþjóðavettvangi – íslenskan á að fá að hljóma
Eyjan
Fyrir 6 dögum

„Vopnið ykkur fyrir kosningarnar“

„Vopnið ykkur fyrir kosningarnar“