fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Eyjan

Styrmir: „Pólitískt einvígi milli Framsóknar og Miðflokks“

Ritstjórn Eyjunnar
Miðvikudaginn 3. apríl 2019 12:56

Styrmir Gunnarsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Innleiðing þriðja orkupakkans er þyrnir í augum Styrmis Gunnarssonar, fyrrverandi ritstjóra Morgunblaðsins, sem telur engar líkur á að þingmenn Sjálfstæðisflokksins stöðvi hið meinta inngrip í fullveldi landsins í meðferð þingsins:

„Þótt allmargir þeirra hafi á undanförnum mánuðum lýst miklum efasemdum er ljóst að þeir munu fylgja þeim ráðherrum flokksins, sem hafa forræði málsins. Og jafnframt fer ekki á milli mála að forystusveit Sjálfstæðisflokksins sér hvorki ástæðu til að veita eftirtekt samþykktum síðasta landsfundar né þeirri sterku undiröldu, sem er meðal almennra flokksmanna vegna málsins. Hvaða áhrif sú afstaða kann að hafa síðar er annað mál.“

Styrmir segir öðru máli gegna um þingmenn Framsóknarflokksins:

„Á milli Framsóknarflokksins og Miðflokksins, sem er undir forystu fyrrum formanns Framsóknarflokksins stendur yfir eins konar pólitískt einvígi. Það blasir ekki við, hvor flokkurinn fer með sigur af hólmi í því einvígi. En líklegt að sá þeirra, sem tapar visni smátt og smátt upp og hverfi af vettvangi. Sterkasta vopnið, sem Miðflokkurinn hefur fengið í þeirri baráttu, er Orkupakki 3, sem flokkurinn hefur snúizt gegn. Láti þingmenn og ráðherrar Framsóknarflokksins málið fara í gegn með þeirra samþykki má vel vera að þar með hafi þeir grafið sína eigin gröf. Og í ljósi þess að í þingflokki Framsóknar hafa verið uppi sterkar efasemdir um málið á undanförnum mánuðum, er erfitt að trúa því, að þeir láti blekkjast af útúrsnúningum og sjónhverfingum þeirra, sem stjórna þessari ferð í þinginu.“

Styrmir telur að Sósíalistaflokkurinn gæti séð sóknarfæri í því að berjast gegn þriðja orkupakkanum og að það myndi veikja stöðu VG enn frekar:

„Í þingflokki VG hefur lítið farið fyrir andstöðu við þetta mál en að VG steðjar nú pólitísk hætta frá vinstri. Taki Sósíalistaflokkurinn upp harða andstöðu við Orkupakka 3, aukast möguleikar hans á að sækja í kjósendafylgi Vinstri grænna. Skoðanakannanir benda til að Sósíalistaflokkurinn sé að eflast og nálgast það fylgi, sem þarf til að fá þingmenn kjörna. Eru þingmenn VG svo blindir á eigin stöðu, að þeir átti sig ekki á því hvað að þeim snýr?“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Hartman í Val
Eyjan
Fyrir 2 dögum

Guðjón Auðunsson: Áhyggjur af því að áhrif vaxtahækkana eigi eftir að bíta almenning alvarlega

Guðjón Auðunsson: Áhyggjur af því að áhrif vaxtahækkana eigi eftir að bíta almenning alvarlega
Eyjan
Fyrir 2 dögum

Jón Gnarr: Forseti tali íslensku á alþjóðavettvangi – íslenskan á að fá að hljóma

Jón Gnarr: Forseti tali íslensku á alþjóðavettvangi – íslenskan á að fá að hljóma
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Lýsa vantrausti á ríkisstjórnina, krefjast þingrofs og nýrra kosninga

Lýsa vantrausti á ríkisstjórnina, krefjast þingrofs og nýrra kosninga
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Mannréttindadómstóll Evrópu slær á puttana á íslenska ríkinu – Brutu gegn rétti til frjálsra kosninga

Mannréttindadómstóll Evrópu slær á puttana á íslenska ríkinu – Brutu gegn rétti til frjálsra kosninga
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ole Anton Bieltvedt skrifar: ESB er miklu meira en sameiginlegur markaður og evran

Ole Anton Bieltvedt skrifar: ESB er miklu meira en sameiginlegur markaður og evran
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Gamli kanslarinn vill fá skrifstofuna sína aftur – Ekki líklegt að það gangi eftir

Gamli kanslarinn vill fá skrifstofuna sína aftur – Ekki líklegt að það gangi eftir
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Sögusagnir sem borgin vísaði á bug eiga sér meiri stoð í raunveruleikanum en af er látið

Sögusagnir sem borgin vísaði á bug eiga sér meiri stoð í raunveruleikanum en af er látið
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Fylgið minnkað um helming – 40 þúsund vantreysta Bjarna sem sætir afarkostum VG

Orðið á götunni: Fylgið minnkað um helming – 40 þúsund vantreysta Bjarna sem sætir afarkostum VG