Guðlaugur Þór Þórðarsson utanríkisráðherra var í viðtali hjá Fanneyju Birnu Jónsdóttur í Silfrinu í dag. Þau ræddu meðal annars um hinn umdeilda þriðja orkupakka sem hefur vakið nokkra úlfúð innan stjórnarflokkanna. Ríkisstjórnin frestaði málinu fyrir jól en Guðlaugur Þór mun leggja fram þingsályktun um samþykkt hans í lok mánaðarins.
Í þættinum sagðist hann telja að góð sátt ríkti innan Sjálfstæðisflokksins um málið eins og ríkisstjórnin legði það fram, bæði hvað varðar fullveldisafsal og möguleikana á að verði lagður sæstrengur.
„Þú getur sagt með réttu að grasrótin sem vakti athygli á þessu hafi sigur í þessu máli,“ sagði Guðlaugur í þættinum.
En Ragnheiður Ríkharðsdóttir, fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins, ekki alveg á sama máli. Hún spáir miklum átökum í flokknum og skrifar á Facebook.
„Það er svo dapurt að verða vitni aftur og aftur að því, að sumum í Sjálfstæðisflokknum finnist að þar eigi bara að ríkja ein skoðun. En nú kemur það líka greinilegar fram en áður að fara eigi gegn forystunni á næsta landsfundi og einstaka þingmönnum í komandi prófkjöri. Við sjálfstæðismenn þurfum að spyrja okkur sjálfa að því hvort þarna liggi ekki ástæða þess að flokkurinn okkar höfðar ekki lengur til hins almenna kjósanda.“