Innhringjandi: Það á að senda þetta allt út úr landi alveg einn tveir og þrír og þessa kerlingu þarna og þetta lið sem er áhangendur þeirra, bara í burtu með þetta…. Það er alveg með ólíkindum hvernig þetta er, að það sé ekki hægt að gera neitt , að sé ekki hægt að taka á neinu…
Útvarpsmaður: Já já.
Innhringjandi: Og til dæmis frekjan og yfirgangurinn orðið í þessum mótmælendum, Argentínumenn, við höfum rætt það áður, þeir fóru með flugvélar með hlera, fóru bara út á tvö hundruð mílurnar, opnuðu hlerana, og komu léttari í land.
Útvarpsmaður: Já.
Innhringjandi: Við þurfum kannski að fara að taka upp eitthvað slíkt dæmi, við getum ekki haft þetta svona, þessi ruslaralýður sem hér á ekki að vera…
Útvarpsmaður: Já.
(Hér er vísað til þess að herforingjastjórnin í Argentínu 1974-1983 hafði dauðasveitir, setti pólitíska fanga upp í flugvélar eða þyrlur, flaug með þá út á sjó, varpaði þeim út úr miklli hæð svo þeir fórust. Þessi morðaðferð var sérgrein þeirra. Talið er að um 30 þúsund manns hafi verið drepin í því sem kallað var “Skítuga stríðið”. En er ekki líka hægt að nota gasklefa?)