Samráðshópur stjórnvalda um breytt framfærslukerfi almannatrygginga sem settur var á innan félagsmálaráðuneytisins í fyrra, hefur nú lokið við skýrslu um málið. Formaður Öryrkjabandalagsins, sem á sæti í hópnum, hefur þó neitað að skrifa undir skýrsluna, samkvæmt tilkynningu:
„ÖBÍ hefur tekið þá afstöðu að skrifa ekki undir skýrsluna. Það er gert af þeirri ástæðu að lausir endar í því starfi eru einfaldlega of margir. Mannsæmandi afkoma er ekki tryggð. Krónu-á-móti-krónu skerðing verður ekki afnumin skilyrðislaust. Ekki er tekið á samspili lífeyriskerfisins og almannatrygginga, vinnumarkaðsmálin óklár, og svona má áfram telja.“
Alþýðusamband Íslands tekur undir sjónarmið ÖBÍ og skrifar heldur ekki undir skýrslu samráðshópsins. Þetta upplýsti forseti ASÍ á málþingi sem kjarahópur ÖBÍ stóð fyrir í gær. Þar benti hún á að hvorki opinber né almennur vinnumarkaður býður upp á störf með lágu starfshlutfalli, sem er sögð forsenda þess að hugmyndir um starfsgetumat geti gengið upp.
„Afnám krónu-á-móti-krónu skerðingar er ein af þeim úrbótum sem hægt er að framkvæma strax ef vilji er fyrir hendi, án þess að farið verði í kerfisbreytingar eða heildarendurskoðun á almannatryggingalögunum ljúki. Þessi afstaða ÖBÍ hefur lengi verið ljós. Henni hefur verið haldið fram gagnvart stjórnvöldum og almenningi um margra ára skeið,“
segir í tilkynningu ÖBÍ, þar sem ríkið er gagnrýnt fyrir ósveigjanleika og þingmenn fyrir rangan málflutning:
„Núverandi ríkisstjórn rígheldur í kröfu um að þessi óréttláta skerðing, sem tæplega verður kölluð annað en kerfisbundið ofbeldi, verði ekki afnumin nema ÖBÍ fallist á að taka upp svokallað starfsgetumat og breiði faðminn á móti nýju framfærslukerfi almannatrygginga. Það er ekki til umræðu að afnema óréttlætið. Það er bara „computer says no“. Í þessu ljósi alveg sérstaklega sorglegt að hlusta á villandi og rangan málflutning í ræðustóli Alþingis þar sem ÖBÍ er beinlínis sagt leggjast gegn afnámi krónu-á-móti krónu skerðingarinnar.“