fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Eyjan

Eyjólfur Árni gefur áfram kost á sér

Ritstjórn Eyjunnar
Miðvikudaginn 20. mars 2019 14:38

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eyjólfur Árni Rafnsson gefur áfram kost á sér sem formaður Samtaka atvinnulífsins en hann tók við formennsku árið 2017. Rafræn kosning fyrir starfsárið 2019-2020 hefst í vikunni meðal aðildarfyrirtækja SA. Þetta kemur fram í tilkynningu.

„Þann  tíma sem ég hef sinnt formennsku í Samtökum atvinnulífsins hefur veruleg vinna farið fram milli aðila vinnumarkaðarins um leiðir til að skapa atvinnulífinu fyrirsjáanleg og góð starfsskilyrði. Það er forsenda þess að hægt sé að leggja grunn að enn betri lífskjörum landsmanna til framtíðar. Vaxandi órói á vinnumarkaði og verkfallsátök geta hins vegar orðið til þess að það þrengi að heimilum og fyrirtækjum næstu misserin. Það vill enginn. Aðstæður í efnahagslífinu hafa gjörbreyst á innan við ári og eru mjög viðkvæmar. Með réttum ákvörðunum má halda áfram að bæta lífskjör fólks og hag fyrirtækja,“

segir Eyjólfur.

Eyjólfur Árni er húsasmiður að mennt og lauk síðar doktorsnámi í byggingarverkfræði. Hann hefur áratuga reynslu af stjórnunarstörfum í íslensku atvinnulífi en frá árinu 2016 hefur hann sinnt ýmsum ráðgjafa- og stjórnunarstörfum. Eyjólfur Árni hefur setið í stjórn SA frá árinu 2014 og í framkvæmdastjórn SA frá 2016.

Tilkynnt verður um kjörið á aðalfundi Samtaka atvinnulífsins sem fram fer á Grand Hótel Reykjavík þiðrjudaginn 9. apríl.

Ársfundur atvinnulífsins 2019, sem haldinn hefur verið í kjölfar aðalfundar, verður haldinn fimmtudaginn 17. október kl. 14-16 í Hörpu en þá verða liðin 20 ár frá stofnun Samtaka atvinnulífsins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Afleiðing forsetaframboðs Katrínar er að Bjarni Ben er orðinn forsætisráðherra

Ólafur Þ. Harðarson: Afleiðing forsetaframboðs Katrínar er að Bjarni Ben er orðinn forsætisráðherra
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Þegar þjóðin hafnaði stjórnmálamanni – Endurtekur sagan sig?

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Þegar þjóðin hafnaði stjórnmálamanni – Endurtekur sagan sig?
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Verður spútnikframbjóðandinn himnasending kosninganna?

Orðið á götunni: Verður spútnikframbjóðandinn himnasending kosninganna?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þrír milljarðar í súginn og þögnin ærandi – „Með öllu óskiljanlegt og ríkisstjórn Íslands til ævarandi skammar“

Þrír milljarðar í súginn og þögnin ærandi – „Með öllu óskiljanlegt og ríkisstjórn Íslands til ævarandi skammar“