fbpx
Þriðjudagur 23.apríl 2024
Eyjan

Vilja fulla aðild að ESB og hækka kolefnisgjaldið

Ritstjórn Eyjunnar
Mánudaginn 18. mars 2019 21:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Flokksstjórnarfundur Samfylkingarinnar fór fram á laugardaginn á Bifröst, hvar um 150 jafnaðarmenn af öllu landinu tóku þátt í fundinum. Ellefu ályktanir lágu fyrir, en fjórar ályktanir voru samþykktar og sjö vísað til málefnanefndar eða stjórnar flokksins til frekar vinnslu.

Þær tillögur sem hlutu samþykki voru eftirfarandi:

Ályktun 3.1.  ESB 

„Flokksstjórnarfundur Samfylkingarinnar fagnar 25 ára afmæli samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, sem var mikið heillaskref fyrir Íslendinga. Vissulega gefur samningurinn Íslendingum ekki færi á að hafa umtalsverð áhrif á stofnanir, löggjöf og þróun Evrópusambandsins. Slíkt fæst ekki nema með fullri aðild að Evrópusambandinu. Í ljósi hinnar góðu reynslu af samstarfinu innan EES telur Samfylkingin að mikilvægt sé að það skref sé stigið sem fyrst svo Íslendingar öðlist áhrif á þróun evrópsks samfélags til jafns við þorra annarra Evrópubúa.“

Ályktun 9.1. Loftslagsmál

„Nýjustu rannsóknir í loftslagsmálum sýna að næstu fimm til tíu ár skipta öllu máli fyrir mannkynið. Á þessum árum mun ráðast hvort við náum að stemma stigu við hlýnun jarðar eða fást við skelfilegar afleiðingar. Flokksstjórn Samfylkingarinnar krefst þess að stjórnvöld ráðist í metnaðarfyllri aðgerðir gegn hlýnun jarðar og tekur undir kröfu ungmenna um allan heim að 2,5% af þjóðarframleiðslu renni beint í slíkar aðgerðir. Flokksstjórn telur ennfremur nauðsynlegt að hækka kolefnisgjaldið og felur þingflokki Samfylkingarinnar að leggja fram frumvarp þess efnis. Milliríkjanefnd Sameinuðu þjóðanna um loftslagsmál reiknast til að verja þurfi 2,5% af heimsframleiðslu til loftslagsmála á ári, til ársins 2035 til að halda hlýnun innan við 1,5 gráður. Evrópusambandið áætlar að 25% af fjármagni stofnunarinnar verði varið í loftslagsmál til ársins 2027.“

Ályktun 11.1. Störf án staðsetningar

„Það er réttlætismál að fólk eigi kost á að sinna ríkisstörfum þótt það búi á landsbyggðinni og það er einnig réttlætismál að fólk geti valið sér búsetu á landsbyggðinni þótt það vinni hjá ríkinu. Þann 1. Janúar 2018 bjuggu 64% þjóðarinnar á höfuðborgarsvæðinu en þar eru um 70% ríkisstarfa staðsett. Hér hallar því á landsbyggðina. Flokksstjórn Samfylkingarinnar ályktar að opinber störf á vegum ríkisins skuli ávallt vera án staðsetningar, nema aðstæður krefjist annars.“

Ályktun 5.1. Þróunarsamvinna 

„Samfylkingin mun því næst þegar hún er í ríkisstjórn hækka framlög Íslands til þróunarsamvinnu til jafns við það sem gerist á öðrum Norðurlöndunum eða í kringum 0,7% af vergum þjóðartekjum (VÞT). Árið 2017 námu framlögin 0,31% af VÞT og stefna núverandi ríkisstjórnarinnar um að hækka framlögin upp í 0,35 lýsir í raun metnaðarleysi að mati Samfylkingarinnar. Á þessum sviðum eru tröllauknar áskoranir. Því er lágmarkskrafa að ríkt land á borð við Ísland geri sitt ítrasta í þessum efnum og að því mun Samfylkingin vinna, hvort sem hún er í stjórn eða stjórnarandstöðu.“

Eftirfarandi ályktanir var vísað til stjórnar eða málefnanefndar sem taka ályktun til meðferðar:

Ályktun 1.1. Kjaradómur<https://xs.is/wp-content/uploads/2019/03/1.1-Ályktun-ff-16.3.2019-Kjaradómur.pdf>

Ályktun 4.1. LÍN<https://xs.is/wp-content/uploads/2019/03/Ályktun-4.1.-LÍN.pdf>

Ályktun 5.1. Þróunarsamvinna<https://xs.is/wp-content/uploads/2019/03/5.1-Ályktun-ff-16.3.19-Þróunarstarf-.pdf>

Ályktun 6.1. Tekjutengd sektarupphæð<https://xs.is/wp-content/uploads/2019/03/6.1-Tillaga-til-ályktunar.pdf>

Ályktun 7.1. Bónusgreiðslur<https://xs.is/wp-content/uploads/2019/03/7.1-Tillaga-til-ályktunar-bónusgreiðslur.pdf>

Ályktun 8.1. Klemmudagakerfi<https://xs.is/wp-content/uploads/2019/03/8.1-Tillaga-til-ályktunar-klemmudagar.pdf>

Ályktun 10.1. Árskort frádráttarbær<https://xs.is/wp-content/uploads/2019/03/10.1-Tillaga-til-ályktunar-almenningssamgöngur-.pdf>

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að
Eyjan
Fyrir 6 dögum

„Vilt ekki að það sé eitt barn í fjölskyldunni sem er vanrækt á kostnað hinna“

„Vilt ekki að það sé eitt barn í fjölskyldunni sem er vanrækt á kostnað hinna“
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Guðjón Auðunsson: Áhyggjur af því að áhrif vaxtahækkana eigi eftir að bíta almenning alvarlega

Guðjón Auðunsson: Áhyggjur af því að áhrif vaxtahækkana eigi eftir að bíta almenning alvarlega