fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Eyjan

Mótmæla lokun gatna í miðbænum: „Hafa skaðað rekstur okkar verulega“

Ritstjórn Eyjunnar
Mánudaginn 18. mars 2019 19:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Miðbæjarfélagið hyggst kynna undirskriftarlista á morgun til mótmæla lokunum borgaryfirvalda á bílaumferð um Laugaveg, Bankastræti og Skólavörðustíg. Eru lokanirnar sagðar skaða rekstur fyrirtækjanna:

„Þær verslanir sem skrifa hér undir þetta bréf hafa allar starfað í miðbænum í 25 ár eða lengur, en samanlögð viðskiptasaga fyrirtækjanna er 1.689 ár. Við höfum því lifað tímana tvenna. Við höfum staðið vaktina þrátt fyrir tilkomu Kringlu, Smáralindar og fleiri verslunarkjarna víðs vegar á höfuðborgarsvæðinu. Við eigum það öll sameiginlegt að leggjast gegn lokunum gatna í miðbænum. Lokanirnar hafa skaðað rekstur okkar verulega undanfarin ár. Nú er mál að linni og kominn tími til að borgaryfirvöld láti af öllum fyrirtætlunum um lokun gatna,“

segir í tilkynningu, en efnt hefur verið til blaðamannafundar á Sólon klukkan 12.15 á morgun.

Sumarlokanir gatna í miðbænum frá árinu 2012 og síendurteknar skyndilokanir hafa leitt af sér mikinn samdrátt í verslun að sögn verslunareigenda. Viðskiptavinir eru sagðir venjast af því að versla á svæðinu þegar götunum er lokað og ástandið sagt versna í hvert sinn sem lokað er að nýju:

„Á þetta hefur ítrekað verið bent, meðal annars með veltutölum, en við höfum talað fyrir daufum eyrum borgaryfirvalda.Staðan í verslun í miðbænum er grafalvarleg. Ýmis rótgróin fyrirtæki eru að hverfa á braut og fleiri að hugsa sér til hreyfings. Það er ekki hvað síst afleiðing götulokana undanfarinna ára. Neikvæð áhrif lokanna ná langt út fyrir þau svæði þar sem lokað er. Þrátt fyrir það boða borgaryfirvöld nú í áföngum lokun Laugavegar, Bankastrætis og neðsta hlutar Skólavörðustígs til frambúðar.Margir í okkar röðum sjá alls engan rekstrargrundvöll í lokaðri götu og telja því eina kostinn að flytja fyrirtækin annað. Til að verslunin fái þrifist þarf aðgengi að henni að vera greitt,“

segir í tilkynningunni sem fjölmargir verslunareigendur standa að:

Gullkistan skrautgripaverslun, Frakkastíg 10 (rétt við hornið á Laugavegi) – rekstrarsaga í 147

Penninn Eymundsson, Austurstræti 18, Laugavegi 77, Skólavörðustíg 11 – verslunarsaga í 140 ár

Verslun Guðsteins Eyjólfssonar, Laugavegi 34 – verslunarsaga í 101 ár

Brynja, Laugavegi 29 – verslunarsaga í 100 ár

Guðlaugur A. Magnússon, Skólavörðustíg 10 – verslunarsaga í 95 ár

Listvinahúsið leirkerasmíði og minjagripaverslun – rekstrarsaga í 92 ár

Efnalaugin Úðafoss, Vitastíg 13 (50 metra frá Laugavegi) – rekstrarsaga í 86 ár

Snyrtivöruverslunin Stella, Bankastræti 3 – verslunarsaga í 77 ár

Vinnufatabúðin, Laugavegi 76 – verslunarsaga í 75 ár

Dún og fiður, Laugavegi 86 – verslunarsaga í 60 ár

Gullsmíðaverslun og verkstæði Hjálmars Torfasonar, Laugavegi 71 – verslunarsaga í 60 ár

Mál og menning, Laugavegi 18 – verslunarsaga í 60 ár

Gleraugnasalan 65, Laugavegi 65 – verslunarsaga í 58 ár

Tösku og hanskabúðin, Laugavegi 103 – verslunarsaga í 58 ár

Herrahúsið, Laugavegi 47 – verslunasaga í 54 ár (flytur nú í Ármúla 27)

Gullsmíðaverslun Guðbrandur J. Jezorski, Laugavegi 48 – verslunarsaga í 53 ár

Gull & Silfur skartgripaverslun og verkstæði – verslunarsaga í 48 ár

Jón og Óskar úra og skartgripaverslun, Laugavegi 61 – verslunarsaga í 48 ár

Gleraugnamiðstöðin Profil-Optik, Laugavegi 24 – verslunarsaga í 47 ár

Linsan gleraugnaverslun, Skólavörðustíg 41 – verslunarsaga í 47 ár

Gilbert úrsmiður, Laugavegi 62 – verslunarsaga í 45 ár

Dimmalimm, Laugavegi 53b – verslunarsaga í 30 ár

Gullkúnst Helgu, Laugavegi 13 – verslunarsaga í 30 ár

Gullsmiðja og Listmunahús Ófeigs, Skólavörðustíg 5 – verslunarsaga í 27 ár

Verslunin Kós, Laugavegi 94 – verslunarsaga í 26 ár

Caruso við Lækjartorg – veitingasaga í 25 ár

Bolli Kristinsson, kaupmaður við Laugaveg

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Inga Sæland herská – Kallar eftir stuðningi á þingpöllunum

Inga Sæland herská – Kallar eftir stuðningi á þingpöllunum
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Guðjón Auðunsson: Verðið á íslensku fasteignafélögunum er allt of lágt

Guðjón Auðunsson: Verðið á íslensku fasteignafélögunum er allt of lágt
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Björn Jón skrifar: Grýlur sem ýla hræðilega

Björn Jón skrifar: Grýlur sem ýla hræðilega
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Guðjón Auðunsson: Ef markmiðið er að fækka um eina kaffivél er sameiningin tilgangslaus

Guðjón Auðunsson: Ef markmiðið er að fækka um eina kaffivél er sameiningin tilgangslaus