fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Eyjan

Fylgi Framsóknar minnkar – VG og Miðflokkurinn sækja í sig veðrið

Ritstjórn Eyjunnar
Mánudaginn 18. mars 2019 15:07

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sjálfstæðisflokkurinn mældist með stuðning 23,6% landsmanna í nýrri könnun MMR sem framkvæmd var dagana 11.-14. mars. Fylgi Sjálfstæðisflokksins jókst um tæpt prósentustig frá síðustu mælingu sem lauk 15. febrúar.

Samfylkingin mældist með 13,8% fylgi, sem er rúmlega tveimur prósentustigum minna en flokkurinn mældist með í síðustu könnun.

Píratar mældust með 13,6% fylgi, sem er rúmum þremur prósentustigum meira en í síðustu mælingum.

Þá minnkaði fylgi Framsóknarflokksins um rúm tvö prósentustig en fylgi Miðflokksins hækkaði um tæp tvö prósentustig frá síðustu mælingum.

Stuðningur við ríkisstjórnina minnkaði lítillega en 41,8% sögðust styðja ríkisstjórnina nú samanborið við 42,8% í síðustu mælingu.

Fylgi Vinstri grænna mældist nú 11,4% og mældist 11,1% í síðustu könnun.
Fylgi Framsóknarflokksins mældist nú 11,1% og mældist 13,5% í síðustu könnun.
Fylgi Viðreisnar mældist nú 9,4% og mældist 8,1% í síðustu könnun.
Fylgi Miðflokksins mældist nú 8,0% og mældist 6,1% í síðustu könnun.
Fylgi Flokks fólksins mældist nú 4,7% og mældist 6,9% í síðustu könnun.
Fylgi Sósíalistaflokks Íslands mældist nú 2,5% og mældist 3,6% í síðustu könnun.
Fylgi annarra flokka mældist 1,9% samanlagt.

 

Lagðar voru allt að þrjár spurningar fyrir svarendur um stuðning þeirra við stjórnmálaflokka. Allir voru spurðir spurningar 1: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?“. Þeir sem svöruðu „Veit ekki/óákveðin(n)“ við spurningu 1 voru því næst spurðir spurningar 2: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?“. Ef aftur var svarað „Veit ekki/óákveðin(n)“ þá voru þátttakendur að lokum spurðir spurningar 3: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“. Fjölda þeirra sem svaraði „einhvern hinna“ í spurningu 3 var skipt milli annarra flokka en Sjálfstæðisflokksins í sama hlutfalli og fylgi þeirra var skv. spurningum 1 og 2. Samtals voru 80,8% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (5,2%), myndu skila auðu (8,3%), myndu ekki kjósa (2,1%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (3,6%). Myndin sýnir niðurstöðu könnunar að viðbættum efri og neðri vikmörkum miðað við 95% öryggisbil ásamt samanburði við síðustu kannanir þar á undan.

Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR.
Álitsgjafar MMR eru valdir úr Þjóðskrá þannig að þeir endurspegli lýðfræðilega samsetningu þjóðarinnar á hverjum tíma.
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 1025 einstaklingar, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 11. til 14. mars 2019

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Inga Sæland herská – Kallar eftir stuðningi á þingpöllunum

Inga Sæland herská – Kallar eftir stuðningi á þingpöllunum
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Guðjón Auðunsson: Verðið á íslensku fasteignafélögunum er allt of lágt

Guðjón Auðunsson: Verðið á íslensku fasteignafélögunum er allt of lágt
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Björn Jón skrifar: Grýlur sem ýla hræðilega

Björn Jón skrifar: Grýlur sem ýla hræðilega
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Guðjón Auðunsson: Ef markmiðið er að fækka um eina kaffivél er sameiningin tilgangslaus

Guðjón Auðunsson: Ef markmiðið er að fækka um eina kaffivél er sameiningin tilgangslaus