fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Eyjan

Guðlaugur Þór fundaði í Berlín: „Bjart framundan í samskiptum ríkjanna“

Ritstjórn Eyjunnar
Föstudaginn 15. mars 2019 17:00

Guðlaugur Þór Þórðarson og Heiko Maas á fundi þeirra í dag. Mynd- utanríkisráðuneytið

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Öryggis- og varnarmál, málefni norðurslóða og alþjóðlegt viðskiptaumhverfi voru meðal helstu umræðuefna á tvíhliða fundi Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, utanríkisráðherra, og Heiko Maas, utanríkisráðherra Þýskalands, sem fram fór í Berlín fyrr í dag.

Á fundinum ræddu ráðherrarnir fyrirhugaðan utanríkisráðherrafund Atlantshafsbandalagsins, sem haldinn verður í Washington 4. apríl í tilefni af 70 ára afmæli bandalagsins. Ennfremur greindi Guðlaugur Þór frá undirbúningi fyrir formennsku Íslands í Norðurskautsráðinu sem hefst í maí, en Þýskaland er áheyrnaraðili að ráðinu og hafa þarlendir ráðamenn sýnt málefnum norðurslóða athygli í auknum mæli.

Samskiptin til austurs og vesturs voru jafnframt til umfjöllunar auk þess sem alþjóðleg viðskipti og málefni Heimsviðskiptastofnunarinnar voru fyrirferðamikil á fundinum. Evrópumálin og Brexit voru rædd og þá fór Guðlaugur Þór yfir stöðu og mikilvægi EES samningsins.

Málefni Sameinuðu þjóðanna voru sömuleiðis til umræðu, en Þýskaland tók nýverið sæti í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna. Einnig kom mannréttindaráðið til umfjöllunar og frumkvæði Íslands í að leiða hóp 36 ríkja, þar með talið Þýskaland, í gagnrýni á stöðu mannréttinda í Sádi-Arabíu. Þá gerði Guðlaugur Þór grein fyrir helstu áherslum Íslands í norrænu samstarfi, sem Ísland er í formennsku fyrir á árinu.

„Ísland mætir ávallt hlýhug og áhuga í Þýskalandi og mikilvægt er að rækta tengsl þessara vinaþjóða. Við deilum sömu gildum og sýn á alþjóðavettvangi, meðal annars innan Atlantshafsbandalagsins og Sameinuðu þjóðanna. Þýskaland er ennfremur í þungamiðju allrar þróunar í Evrópu. Tvíhliða samskipti Íslands og Þýskalands standa jafnframt í miklum blóma, meðal annars á sviðum viðskipta, fjárfestinga og ferðamennsku, en einnig í menningarmálum og íþróttastarfi. Það er margt og bjart framundan í samskiptum ríkjanna,“

segir Guðlaugur Þór utanríkisráðherra.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Orðið á götunni: Katrín vildi Geir Haarde í fangelsi – hefur ekki beðist afsökunar

Orðið á götunni: Katrín vildi Geir Haarde í fangelsi – hefur ekki beðist afsökunar
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Varaþingmaður Samfylkingarinnar yfirgefur flokkinn – Segir Samfylkinguna hafa sofnað á mannréttindavaktinni

Varaþingmaður Samfylkingarinnar yfirgefur flokkinn – Segir Samfylkinguna hafa sofnað á mannréttindavaktinni
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Sigmundur Ernir skrifar: Flokkurinn sem yfirgaf sjálfan sig

Sigmundur Ernir skrifar: Flokkurinn sem yfirgaf sjálfan sig
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Sjálfstæðismenn aðeins einu sinni fengið sinn forseta – sá var fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins

Ólafur Þ. Harðarson: Sjálfstæðismenn aðeins einu sinni fengið sinn forseta – sá var fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Katrín með forskot á Baldur – Halla Hrund sækir í sig veðrið

Katrín með forskot á Baldur – Halla Hrund sækir í sig veðrið
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Kúrekar og jakkafatalakkar Alþingis – „Fólkið í fínu fötunum, með fínu skoðanirnar og fínu brosin“

Kúrekar og jakkafatalakkar Alþingis – „Fólkið í fínu fötunum, með fínu skoðanirnar og fínu brosin“
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Maskína: Alvarleg staða hjá 70 prósent þjóðarinnar – verðbólga og vextir vandinn

Maskína: Alvarleg staða hjá 70 prósent þjóðarinnar – verðbólga og vextir vandinn
Eyjan
Fyrir 6 dögum

800 milljóna halli en þokast í rétta átt

800 milljóna halli en þokast í rétta átt