fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Eyjan

Ragnar Þór um kosningu VR: „Hefði viljað sjá meira afgerandi afstöðu“

Ritstjórn Eyjunnar
Miðvikudaginn 13. mars 2019 08:48

Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í gær samþykktu félagsmenn VR að fara í verkfallsaðgerðir með kosningu. Alls 302 kusu með aðgerðunum af 578 sem greiddu atkvæði, eða 52,3 prósent, sem telst naumur meirihluti.  Fyrst verður herjað á ferðaþjónustufyrirtæki og rútufyrirtæki, en aðgerðirnar munu standa yfir frá 22.mars til 1. maí.

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, segir við Fréttablaðið að þetta hafi verið full tæpt fyrir sinn smekk, en sé samt sem áður vilji félagsmanna:

„Þetta var tæpt og við vissum að það voru skiptar skoðanir innan okkar félags um það hvort ætti að fara í aðgerðir. Félagsmenn okkar eru afar ólíkir samanborið við Eflingu til að mynda. Við vorum búnir að ræða við okkar félagsmenn og fundum að það var líka á brattann að sækja. Einnig var orðræðan óvægin í okkar garð, bæði hjá leiðarahöfundum stóru blaðanna og öflugum hagsmunahópum og öflum í samfélaginu. Ég hefði viljað sjá meira afgerandi afstöðu í þessari kosningu en lýðræðið er þannig að við förum eftir vilja félagsmanna. Nú förum við í þessar framkvæmdir og vonumst til að viðsemjendur okkar séu tilbúnir til þess að semja við okkur.“

Kemur sér illa fyrir greinina

Þórir Garðarsson, stjórnarformaður Gray line rútufyrirtækisins, segir þetta koma sér illa fyrir stóru rútufyrirtækin, en ætla mætti á uppgangi ferðaþjónustunnar undanfarin ár að þau stæðu nokkuð vel:

„Þessi vinnustöðvun á að beinast að breiðu bökunum. Hins vegar er alveg ljóst að rútufyrirtæki hér á landi hafa verið að tapa fjármunum á síðustu árum. Ástæður þess eru einfaldar, sterkt gengi krónunnar hefur gert okkur lífið leitt, laun voru hækkuð með kjarasamningum árið 2015 og svo var greininni gert að greiða virðisaukaskatt ári seinna. Allt þetta hefur gert það að verkum að rútufyrirtæki geta einfaldlega ekki greitt hærri laun en nú er gert. Þetta mun koma sér illa fyrir greinina í heild sinni. Þetta mun hafa alvarlegar afleiðingar og skaða hana. Og það er í sjálfu sér mjög áhugavert að fara í svo stórar aðgerðir með svo naumum meirihluta.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Er Gallup vanhæft í aðdraganda forsetakosninganna?

Orðið á götunni: Er Gallup vanhæft í aðdraganda forsetakosninganna?
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Maskína: Alvarleg staða hjá 70 prósent þjóðarinnar – verðbólga og vextir vandinn

Maskína: Alvarleg staða hjá 70 prósent þjóðarinnar – verðbólga og vextir vandinn