fbpx
Fimmtudagur 18.apríl 2024
Eyjan

Nýbyggingar stórfjölga íbúðum á sölu

Ritstjórn Eyjunnar
Þriðjudaginn 12. mars 2019 08:28

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Íslenski fasteignamarkaðurinn einkennist nú af byggingu nýrra íbúða. Sést þetta meðal annars á fjölgun þeirra á skrám fasteignasala en óvenju margar nýbyggingar komu inn til sölu í janúar sl., eða 362 íbúðir yfir landið allt, samkvæmt mánaðarskýrslu Íbúðalánasjóðs. Aðeins einu sinni frá árinu 2013 hafa fleiri nýbyggingar verið settar á sölu í stökum mánuði. Sé litið til alls síðasta árs, þá var 154% aukning í skráningu nýrra íbúða til sölu samanborið við árið 2017.

Þá má nefna að í heildina voru 1.880 íbúðir settar á sölu í janúar sem er einnig mesta framboð íbúða sem mælst hefur á einum mánuði á undanförnum sex árum.

Hlutfall íbúðaviðskipta yfir ásettu verði sögulega lágt

Hlutfall íbúða sem seljast yfir ásettu verði hefur ekki mælst jafnlágt síðan í byrjun árs 2013. Aðeins 4% íbúðaviðskipta á höfuðborgarsvæðinu í janúar áttu sér stað yfir ásettu verði. 14% íbúða seldust á ásettu verði og 83% undir ásettu verði.

 756 leigusamningum þinglýst í janúar

Í janúar var alls 756 leigusamningum þinglýst hér á landi sem er 16% fjölgun frá sama mánuði í fyrra. Flestum leigusamningum utan höfuðborgarsvæðisins var þinglýst á Suðurnesjum. Þar voru þeir alls 78 talsins sem samsvarar 18% fjölgun frá fyrra ári.

Mesta fjölgun íbúða síðan 2008

Íbúðum á landinu öllu fjölgaði um 2.400 í fyrra og eru þær nú 140.600 talsins. Til samanburðar fjölgaði íbúðum um 1.800 árið 2017. Um er að ræða mestu árlegu fjölgun íbúða síðan 2008. Á höfuðborgarsvæðinu fjölgaði íbúðum um 542. Utan höfuðborgarsvæðisins varð mesta fjölgunin í Reykjanesbæ þar sem 227 íbúðir bættust við.

7% aukning greiddra húsnæðisbóta milli mánaða í janúar

Húsnæðisbætur eru mikilvægur stuðningur við tekjulága á leigumarkaði. Heildarfjárhæð greiddra húsnæðisbóta í janúar var tæplega 530 milljónir kr. sem samsvarar 7% aukningu frá því í desember þegar 496 milljónir kr. voru greiddar út. Hækkunin skýrist meðal annars af því að félags- og barnamálaráðherra staðfesti breytingu á reglugerð nr. 1200/2016 um húsnæðisbætur sem hækkaði frítekjumörk húsnæðisbóta frá og með 1. janúar 2019.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Björn Jón skrifar: Grýlur sem ýla hræðilega

Björn Jón skrifar: Grýlur sem ýla hræðilega
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Guðjón Auðunsson: Ef markmiðið er að fækka um eina kaffivél er sameiningin tilgangslaus

Guðjón Auðunsson: Ef markmiðið er að fækka um eina kaffivél er sameiningin tilgangslaus