fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Eyjan

Staðreyndir um mislinga – Ert þú búinn að bólusetja þig ?

Ritstjórn Eyjunnar
Mánudaginn 11. mars 2019 19:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Heilbrigðisráðuneytið sér ástæðu til að birta staðreyndir um mislinga á vefsvæði sínu í dag, en nokkur tilfelli mislinga hafa greinst hér á landi undanfarna daga. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin hefur hvatt þjóðir til að sporna við útbreiðslu þeirra og hvatt er til bólusetninga.

Þú getur gengið úr skugga um hvort þú sért bólusettur hér.

„Dauðsföllum af völdum mislinga á heimsvísu fækkaði um 80% milli áranna 2000 og 2017 vegna aukinnar áherslu á bólusetningu. Áætlað er bólusetning fyrir mislingum hafi komið í veg fyrir 21,1 milljón dauðsfalla á þessu árabili. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) hefur tekið saman staðreyndir um mislinga og bólusetningu við þeim og segir stofnunin bólusetningu við sjúkdómnum með ábatasömustu fjárfestingum til að efla lýðheilsu.

Bóluefni við mislingum var fyrst kynnt til sögunnar árið 1963. Í samantekt WHO segir að fyrir þann tíma og áður en farið var að bólusetja fyrir mislingum í ríkum mæli hafi alvarlegir mislingafaraldrar brotist út á tveggja til þriggja ára fresti og valdið um 2,6 milljónum dauðsfalla ár hvert.

Þrátt fyrir að bóluefni við mislingum sé bæði öruggt og ódýrt drógu mislingar yfir 110.000 manns til dauða í heiminum árið 2017, að stærstum hluta börn yngri en fimm ára. Árið 2000 fengu um það bil 72% barna í heiminum bólusetningu við mislingum við eins árs aldur en árið 2017 var hlutfallið komið í 85%.

Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hvetur þjóðir til að halda vöku sinni til að sporna við útbreiðslu mislinga og standa vörð um þann árangur sem náðst hefur með stöðugri árvekni og markvissum aðgerðum.

Embætti landlæknis hefur tekið saman spurningar og svör um mislinga og birt á vef sínum www.landlaeknir.is. Á vef embættisins eru einnig birtar tilkynningar um stöðu mála eftir því sem efni standa til í kjölfar þess að mislingar greindust hér á landi nýlega. Þar segir að á samráðsfundi sóttvarnaryfirvalda í morgun, mánudaginn 11. mars, hafi komið fram að ekki hafa greinst ný tilfelli mislinga. “

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Björn Jón skrifar: Ótrúlegur árangur íslenskra tæknifyrirtækja

Björn Jón skrifar: Ótrúlegur árangur íslenskra tæknifyrirtækja
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Lindarhvoll: Leyndarhyggjan enn við lýði – svör berast seint, illa eða ekki

Lindarhvoll: Leyndarhyggjan enn við lýði – svör berast seint, illa eða ekki