Hælisleitendur á Íslandi og stuðningsmenn þeirra efndu til mótmæla á Austurvelli í dag. Mótmælt var brottflutningi hælisleitenda frá landinu og áformum um að herða á Dyflinnar-reglugerðinni sem kveður á um að hægt sé að senda hælisleitanda aftur til fyrsta örugga landsins sem hann leitaði til. Þá vilja hælisleitendur að hver umsókn um hæli sé tekin til efnislegrar meðferðar og þeir vilja betri aðgang að heilbrigðisþjónustu. Nokkrir tugir tóku þátt í mótmælunum. Átök brutust út á milli mótmælenda og lögreglunnar þegar nokkrir mótmælendur hugðust setja upp tjald á Austurvelli.
Í Facebook-hópnum Refugees in Iceland er staðhæft að lögreglan hafi beitt piparúða og birt mynd af mótmælanda til því til stuðnings.