Eftir að flugvél af gerðinni Boeing 737 MAX 8 fórst í Addis Ababa í Eþíópíu í gær, hefur gengi hlutabréfa í Icelandair hríðfallið í morgun. Nemur lækkunin um 11 prósentum þegar þetta er ritað, í rúmlega 70 milljón króna viðskiptum.
Vélin sem fórst er af sömu gerð og sú sem fórst skömmu eftir flugtak í Jakarta í Indónesíu í október í fyrra, en Icelandair er með þrjár vélar sömu gerðar í sinni þjónustu og stefnir á að fá fleiri slíkar vélar, því félagið hefur tryggt sér kauprétt á samtals 16 vélum af gerðinni, MAX 8 og MAX 9.
Hlutabréfaverð í Boeing hefur einnig lækkað í dag, um tæplega 11 prósent í Bandaríkjunum og tæplega 8 prósent í Þýskalandi.
Kínversk yfirvöld hafa brugðið á það ráð að kyrrsetja allar vélar Boeing af þessari gerð í kjölfar slyssins í Eþíópíu, þar sem 157 létust.Alls eru 96 slíkar vélar í Kína og samkvæmt kröfu yfirvalda eiga þær allar að verða kyrrsettar fyrir klukkan 18 að staðartíma í dag.
Framkvæmdarstjóri rekstrarsviðs Icelandair, Jens Þórðarson, sagði í gær að fylgst væri með málinu, en á meðan væri engin ástæða til að óttast. Ekki væri tímabært að ræða kyrrsetningu á vélum félagsins:
„Við erum að bíða eftir því að fólk átti sig og við tökum stöðuna þegar eitthvað kemur í ljós um ástæður slyssins, en enn sem komið er engin ástæða til að óttast þessar vélar,“
sagði Jens við Fréttablaðið.
Oddný G. Harðardóttir, þingflokkformaður Samfylkingarinnar, spyr hvenær sé tímabært að tengja saman slysin tvö:
,,Icelandair gerir út þrjár svona þotur en Jens Þórðarson, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs hjá Icelandair, segir ótímabært að tengja slysin tvö saman.“ Hvenær ætli það sé tímabært? Kínverjar og fleiri hafa lagt sínum flugvélum af sömu tegund og bíða niðurstaðna rannsókna á flugslysunum. Hvers vegna gerir Icelandair það ekki líka?“
Þegar Oddnýju er bent á að um tilviljun gæti verið að ræða segir hún:
„Þetta getur verið tilviljun en er ekki rétt að bíða á meðan að málið er kannað. Það er sammerkt með þessum slysum að það var ekkert að veðri og allar aðstæður flugs góðar en stuttu eftir flugtaka fara flugvélarnar niður.“
Í athugasemdarkerfinu tjáir Smári McCarthy, þingmaður Pírata sig um málið og hvetur til yfirvegunar. Hann telur að kyrrsetning kínverja sé hluti af pólitík:
„Það eru nú þegar 350 stykki 737 MAX vélar í notkun í heiminum dagsdaglega, og -8 variantinn er vinsælastur. Það er greinilega eitthvað ekki alveg í lagi, að því er virðist með AoA mælirinn og sjálfvirku nefslækkunina í vissum tilvikum, en það að bara tvö (vitanlega hræðileg) slys hafi átt sér stað, bæði hjá fyrirtækjum sem eiga sér ekki fullkomna öryggissögu, segir mér að það sé líklegra að þetta sé þjálfunaratriði sem ég býst við að Icelandair sé með á hreinu. Betra að æsa sig ekki um of amk fyrr en EASA og FAA leggja sinn dóm á málið. (Þess má líka geta að það gætir ákveðinnar pólitíkur í viðbrögðum Kínverja, sem eru svolítið að reyna að ýta sínu Comac brandi…)“