fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Eyjan

Bæjarstjóri Ísafjarðar: „Ég sem hélt að rasísku umhverfissinnarnir í Ófærð væru skáldaðar persónur“

Ritstjórn Eyjunnar
Föstudaginn 8. mars 2019 17:00

Guðmundur Gunnarsson, bæjarstjóri Ísafjarðar

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Guðmundur Gunnarsson, bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar, var til viðtals á Rás 1 í gær, hvar hann sagði umræðuna um framkvæmdir við Hvalárvirkjun í Ófeigsfirði á Ströndum vera litaða af hroka og yfirlæti í garð Vestfirðinga, en hafa umhverfissinnar barist hart gegn fyrirhuguðum framkvæmdum, sem Skipulagsstofnun telur muni hafa veruleg neikvæð áhrif á landslagið.

Guðmundur sagði raforkumál í landsfjórðungnum í ólestri og sagði framkvæmdina lífsnauðsynlega fyrir svæðið.

Trónir á toppnum í furðulegu deildinni

Í dag greinir Guðmundur síðan frá því að honum hafi borist fjölmörg skeyti vegna frammistöðu sinnar í útvarpinu og birtir skilaboð sem hann fékk frá manni sem virðist hafa verið í ójafnvægi, sem sjá má neðst í fréttinni.

Skrifar Guðmundur af því tilefni:

„Ég hef fengið nokkur skeyti eftir að ég jarmaði á morgunvaktinni á Rás 1 í gær. Flest hófstillt, önnur skrítin. Þetta trónir á toppnum í furðulegu deildinni. Símtalið sem fylgdi var svo enn furðulegra. Ég sleit því þegar því var haldið fram að fjölgun á Vestfjörðum væri borin uppi af þjófum frá Austur-Evrópu og að ég hafi örugglega þegið heilaþvott í Noregi. Ég sem hélt að rasísku umhverfissinnarnir í #ófærð væru skáldaðar persónur.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Guðjón Auðunsson: Verðið á íslensku fasteignafélögunum er allt of lágt

Guðjón Auðunsson: Verðið á íslensku fasteignafélögunum er allt of lágt
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Orðið á götunni: Birgir í klemmu

Orðið á götunni: Birgir í klemmu
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Jóhann Páll skrifar: Höggvum á skriffinnsku í heilbrigðiskerfinu

Jóhann Páll skrifar: Höggvum á skriffinnsku í heilbrigðiskerfinu
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Jón Gnarr um framboð Katrínar – „Þetta stríðir gegn einhverju sem mér finnst eðlilegt og rétt“

Jón Gnarr um framboð Katrínar – „Þetta stríðir gegn einhverju sem mér finnst eðlilegt og rétt“