Á fundi byggðaráðs Langanesbyggðar þann 28. febrúar var bókun samþykkt þess efnis að mótmæla harðlega hugmyndum um skertar flugsamgöngur sem boðaðar séu í samgönguáætlun með aflagningu ríkisstyrks á innanlandsflugi til Vopnafjarðar og Þórshafnar.
„Af þessum ástæðum vill byggðaráð leggja þunga áherslu á mikilvægi þess að flugþjónusta til Vopnafjarðar og Þórshafnar verði ekki skert. Það skiptir miklu máli að fjarlægar byggðir landsins búi við traustar og skilvirkar almennings- og sjúkrasamgöngur. Flug fyrir íbúa á þessu svæði er því ekki ósvipað og ferjur eru fyrir Vestmannaeyinga, íbúa í Grímsey og Hrísey, þ.e. nauðsynlegur valkostur,“
segir í bókuninni.
Bókunin kemur í kjölfar hugmynda sem fram komu í drögum að stefnu í almenningssamgögnum sem kynnt var 14. febrúar sl.
Þar segir einnig:
Um leið og byggðaráð Langanesbyggðar fagnar því að samþætta eigi almenningssamgöngur á landinu, mótmælir byggðaráð harðlega þeim hugmyndum að skerða flugsamgöngur m.a. við norðaustur hluta landsins, þ.e. Þórshöfn og Vopnafjörð. Þessar skerðingarhugmyndir eru einnig í ósamræmi við hina svokölluðu skosku leið sem gert er ráð fyrir í fyrirliggjandi samgönguáætlun. Jafnframt verður að teljast að einstök markmið, um fyrirhugaðan niðurskurð á flugsamgöngum, gangi gegn megin markmiðum samþykktarinnar um samfélagslegt hlutverk hennar, þ.e. eflingu lífsgæða með aðgangi að skilvirku og heildstæðu almenningssamgöngukerfi og aukinni þjónustu, tryggu aðgengi að opinberri þjónustu í nærumhverfi sem og á höfuðborgarsvæðinu.