fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Eyjan

Ólafur og Karl Gauti gengnir í Miðflokkinn

Ágúst Borgþór Sverrisson
Föstudaginn 22. febrúar 2019 14:24

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þeir Ólafur Ísleifsson og Karl Gauti Hjaltason, fyrrverandi þingmenn Flokks fólksins, eru gengnir til liðs við Miðflokkinn. Ólafur og Karl komu mjög við sögu í Klaustursupptökunum en þar mátti greina vantraust þeirra á formann flokksins, Ingu Sæland. Í kjölfarið voru þeir reknir úr flokknum og hafa undanfarið setið á þingi sem óháðir þingmenn. Þeir Ólafur og Karl hafa sent frá sér eftirfarandi tilkynningu vegna málsins:

Við undirritaðir alþingismenn höfum ákveðið að ganga til liðs við þingflokk Miðflokksins frá og með deginum í dag.

Áherslur okkar hafa birst í eindregnum stuðningi við láglaunafólk og þá sem standa höllum fæti í íslensku samfélagi og þar eigum við samleið með Miðflokknum. Við erum sammála um nauðsyn þess að leiðrétta kjör hinna lægst launuðu og skapa öldruðum og öryrkjum tækifæri til að bæta hag sinn með aukinni vinnu án skerðingar almannatryggingabóta. Við erum sammála um áherslur í málefnum hins sístækkandi hóps aldraðra sem geti notið ævikvöldsins á heimili sínu eins lengi og unnt er, með öruggu framboði hjúkrunarrýma þegar nauðsyn knýr á um slík úrræði.  

Á Alþingi höfum við átt samleið í áherslu á nútímalegt fjármálakerfi laust við okurvexti og verðtryggingu, þróttmikið atvinnulíf og fjárhagslegt öryggi íslenskra heimila. Við erum sammála um mikilvægi réttarríkisins, mannréttinda og að standa gegn hvers kyns valdníðslu. Við viljum stórátak í samgöngumálum og styðja við sóknarfæri í hinum dreifðu byggðum landsins.

Á vettvangi Miðflokksins teljum við okkur geta náð betri árangri í baráttumálum okkar og styrkt málefnastöðu flokksins. Við höfum sameiginlega sýn á sjálfstæði og fullveldi þjóðarinnar, yfirráð hennar á auðlindum sínum og mikilvægi vestrænnar samvinnu.

Við teljum að á vettvangi Miðflokksins styrkjum við stöðu okkar á Alþingi til að knýja á um framgang þeirra málefna, sem kjósendur treystu okkur fyrir í síðustu alþingiskosningum. 

Reykjavík 22. febrúar 2019

Karl Gauti Hjaltason, 8. þingmaður Suðurkjördæmis

Ólafur Ísleifsson, 10. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis norður

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt