fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
Eyjan

Depurð eykst hjá unglingum í 10. bekk

Ritstjórn Eyjunnar
Laugardaginn 19. janúar 2019 17:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rannsóknastofa í tómstundafræðum Háskóla Íslands birti á dögunum niðurstöður rannsóknarinnar Heilsa og lífskjör skólanema sem unnin er að tilstuðlan Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar (e. WHO). Niðurstöðurnar byggja á svörum rúmlega 7.000 nemenda á landinu öllu sem þátt tóku í rannsókninni í fyrra. Rannsóknin er lögð fyrir á fjögurra ára fresti fyrir nemendur í 6., 8. og 10. bekk.

Almennt séð er líðanin góð, en mikil aukning er í depurð unglinga í 10. bekk, samanborið við könnun frá árinu 2006, þegar  5.8 prósent unglinga sögðust finna til depurðar, en nú segjast 7,6 prósent finna til depurðar daglega. Þá segjast 20 prósent 10. bekkinga finna til depurðar vikuelga eða oftar.

Líðan nemenda er almennt góð samkvæmt rannsókninni og flestum nemendum virðist líða vel eða þokkalega í skólanum en smávægilegur breytileiki er á milli landshluta og aldurshópa. Þannig svara um 90% nemenda að þeim líði þokkalega eða mjög vel í skólanum. Um 10% nemenda segjast ekki líða vel í skólanum en 2,7%-4,2% nemenda líður mjög illa samkvæmt rannsókninni.

Flestir nemendur telja að kennurum sé annt um sig eða um 81% nemenda í 6. bekk og 65% í 10. bekk sem er jákvæð niðurstaða og rímar vel við almenna vellíðan nemenda í skólum landsins. Langflestir treysta kennara sínum vel og virðist það eiga við nemendur í öllum landshlutum.

Aukið álag og vanlíðan

Námsálag eykst á milli 6. og 10. bekkjar en 9,5% nemenda í 6. bekk telja álag í námi vera mikið en rétt tæpur fjórðungur nemenda í 10. bekk telja námsálag vera mikið.

Einnig er spurt um heilsu nemenda en talsverð aukning er á milli fyrirlagna á tíðni höfuðverkja meðal nemenda og fer tíðni verkja vaxandi frá 6. bekk. Lítill sem enginn munur er á milli landsvæða.

Um 70% nemenda í öllum árgöngum telja sig finna sjaldan eða aldrei fyrir depurð. Hins vegar ber að skoða þessar niðurstöður vel því marktæk hækkun er milli fyrirlagna í 6. og 10. bekk þar sem 10-15% nemenda í 6. bekk segjast upplifa depurð einu sinni eða oftar í viku en um 20% nemenda í 10. bekk grunnskóla. Þetta er aukning frá árinu 2006 þegar 5,8% nemenda í 10. bekk kváðust upplifa depurð daglega en árið 2018 er það hlutfall komið í 7,6%. Séu niðurstöður skoðaðar eftir kyni nemenda kemur í ljós að stelpur eru mun líklegri til að finna fyrir depurð á hverjum degi og ástandið versnar eftir því sem unglingar eldast.

Örlítið virðist draga úr svefnörðugleikum með hækkandi aldri þátttakenda en engu að síður segjast um 10% allra nemenda í 10. bekk eiga erfitt með svefn á nærri því hverri nóttu. Í raun má segja að aðeins rétt rúmlega helmingur unglinganna eigi sjaldan í vandræðum með svefn, þ.e. mánaðarlega eða sjaldnar,

segir í tilkynningunni.

Einelti og áfengis- og vímuefnaneysla

Nokkur breytileiki er milli landshluta á tíðni þolenda eineltis sem almennt er frekar lítið en tíðni dregst saman eftir því sem ungmenni eldast. Því má segja að vel hafi tekist til í eineltisforvörnum í íslenskum skólum.

Áfengis- og vímuefnaneysla ungmenna á Íslandi er almennt lítil og um 70% nemenda hafa aldrei smakkað áfengi. Hins vegar reykja 5% nemenda í 10. bekk að staðaldri og 25% nemenda í 10. bekk hafa prófað rafrettur og er það hlutfall nokkuð misjafnt milli landshluta. Niðurstöður kannana Rannsókna og greiningar hafa einnig sýnt fram á góðan árangur í forvörnum á undanförnum áratugum. Eigi að síður þarf að viðhalda þeim árangri með áframhaldandi forvarnarstarfi þar sem nýjar áskoranir verða ávallt til staðar.

Hreyfing og næring

Spurt var um líkamsrækt og hreyfingu í rannsókninni og sé litið til landsins í heild þá kemur í ljós að flestir nemendur í öllum aldurshópum hreyfa sig reglulega. Athygli vekur hve margir nemendur hreyfa sig a.m.k. 60 mínútur fjóra daga í viku eða oftar í öllum aldurshópum sem verður að teljast mjög jákvæð niðurstaða. Nokkuð dregur úr hreyfingu með hækkandi aldri og í 10. bekk svöruðu 8,2% nemenda því til að þau hefðu ekki hreyft sig undanfarna sjö daga.

Matarvenjur nemenda virðast einnig vera nokkuð góðar en ávaxta- og grænmetisneysla er mjög almenn meðal nemenda og mjög lítill hluti þeirra segist aldrei neyta slíkra vara. Samkvæmt skýrslunni virðist vera aukning á neyslu orkudrykkja með hækkandi aldri á milli kannana.

Rannsóknin Heilsa og lífskjör skólanema er ein viðamesta rannsókn samtímans á sviði heilsu og heilsutengdrar hegðunar ungs fólks en rúmlega 40 lönd tóku þátt í fyrirlögn hennar árið 2018.

Nánar má fræðast um rannsóknina hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Óttar Guðmundsson skrifar: Óæskilegt lesefni

Óttar Guðmundsson skrifar: Óæskilegt lesefni
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Trúnaði aflétt af leynilegu minnisblaði um meint spillingarmál – „Hlýtur að teljast vafasamt“

Trúnaði aflétt af leynilegu minnisblaði um meint spillingarmál – „Hlýtur að teljast vafasamt“
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Verður spútnikframbjóðandinn himnasending kosninganna?

Orðið á götunni: Verður spútnikframbjóðandinn himnasending kosninganna?
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Þrír milljarðar í súginn og þögnin ærandi – „Með öllu óskiljanlegt og ríkisstjórn Íslands til ævarandi skammar“

Þrír milljarðar í súginn og þögnin ærandi – „Með öllu óskiljanlegt og ríkisstjórn Íslands til ævarandi skammar“
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Þorsteinn Siglaugsson skrifar: Gervigreind og máttur tungumálsins

Þorsteinn Siglaugsson skrifar: Gervigreind og máttur tungumálsins
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Notum tímann núna

Þorsteinn Pálsson skrifar: Notum tímann núna