fbpx
Fimmtudagur 18.apríl 2024
Eyjan

Stefán segir Brynjar Níelsson vera „átakanlegan“og rök hans „ævintýralegt rugl“

Ritstjórn Eyjunnar
Miðvikudaginn 16. janúar 2019 14:04

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stefán Ólafsson, félagsfræðiprófessor og sérfræðingur hjá Eflingu-Stéttarfélagi, hrekur í Eyjupistli sínum fullyrðingar Brynjars Níelssonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, sem í Kastljósinu taldi upp ástæðurnar fyrir því að selja bæri ríkisbankana. Segir hann að „átakanlegt“ hafi verið að hlusta á Brynjar og að Smári McCarthy, þingmaður Pírata, hafi „rúllað“ honum upp og „pakkað honum inn í notaðan jólapappír.“

„Að miklu leyti var Brynjar hálf kjaftstopp og vissi ekki hvað hann átti að segja – en að öðru leyti voru rökin sem hann kom með ævintýralegt rugl.“

segir Stefán.

Brynjar sagði að selja bæri ríkisbankana þar sem um áhætturekstur væri að ræða fyrir ríkið. Þetta segir Stefán að sé hlægilegt, þar sem ríkið hafi átt landsbankann í 117 ár og það hafi gengið ágætlega á sama tíma og Ísland varð ein ríkasta þjóð heims. Einnig, að í kjölfar einkavæðingar hafi eigendurnir rekið bankann í þrot á stuttum tíma, með græðgina á leiðarljósi, á aðeins fimm árum sem hafi verið risagjaldþrot á heimsvísu:

„Þó bankarnir væru í einkaeign þá reyndist sá mikli og stórkostlegi einkarekstur fela í sér gríðarlega áhættu fyrir ríkið og þjóðina alla. Pælið í því! Einkarekstur banka er miklu áhættusamari en ríkisrekstur banka – það er reynsla Íslendinga. Á þeim tíma sem ríkið hefur átt Landsbankann á ný hefur hann skilað vel á annað hundrað milljörðum í arð til þjóðarinnar. Íslandsbanki hefur skilað um 60 milljörðum. Sjálfgræðismenn vilja nú koma slíkum ofurgróða í hendur auðmanna,“

segir Stefán.

Samkeppnin engu minni nú

Brynjar sagði að meiri samkeppni þyrfti milli bankanna og að einkavæðing myndi stuðla að henni. Þetta segir Stefán að sé líka „rugl“ þar sem samkeppni milli banka sé engu minni nú en árunum fyrir hrun. Þá nefnir hann einnig að vextir séu nú talsvert lægri en milli 2003 og 2008, þegar bankarnir voru í einkaeigu, þó vextir séu nú samt of háir.

Brynjar sagði einnig að bankar væru ávallt reknir í þágu eigenda sinna. Um það segir Stefán:

„Það var sennilega það eina rétta sem hann sagði! Það er hins vegar besta ástæðan fyrir því að þeir eiga að vera áfram í sameign þjóðarinnar, eins og stór meirihluti þjóðarinnar vill (sjá hér). Bankar eru slæmir og þá þarf að hemja með reglum og virku aðhaldi svo þeir þjóni samfélaginu almennilega. Mikið vantar enn uppá það. Það eina góða við Landsbankann og Íslandsbanka er að þeir eru í ríkiseigu – arðurinn fer til sameiginlegra þarfa þjóðarinnar. Að fenginni reynslu á ekki að koma til greina að einkavæða bankana að neinu leyti fyrr en stjórnmálalífið er komið á miklu hærra þroska- og siðferðisstig en nú er. Langan tíma mun taka að komast á það stig. Hagsmunir þjóðarinnar eiga að vera í fyrirrúmi – ekki hagsmunir fámennrar yfirstéttar sem vill fá að blóðmjólka þjóðina og auðlindir hennar í eigin þágu.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt