fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Eyjan

Leikskólagjöldin hæst í Garðabæ – Mikill verðmunur milli sveitarfélaga

Ritstjórn Eyjunnar
Miðvikudaginn 16. janúar 2019 10:31

Leikskóli - Mynd úr safni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mikill verðmunur er á almennum leikskólagjöldum sveitarfélaganna, eða 53 prósent þar sem mest lætur, rúmlega 150 þúsund krónur. Lægstu gjöldin eru í Reykjavík, en hæst eru þau í Garðabæ. Þetta leiðir verðkönnun Alþýðusambands Íslands í ljós.

Allt að 53% eða 150.205 kr. verðmunur er á almennum leikskólagjöldum á ári milli sveitarfélaganna miðað við 8 tíma með fæði. Verðmunurinn er enn meiri, 69% eða 131.802 kr. á ári milli ef sömu leikskólagjöld fyrir forgangshópa eru skoðuð. Munurinn er líka meiri ef gjöld fyrir 9 tíma eru skoðuð. Á almennu gjaldi er 58% munur eða 17.837 kr. á mánuði sem jafngildir 196.207 kr. á ári og 65% munur er á hæsta og lægsta gjaldi fyrir forgangshópa eða 14.049 kr. á mánuði sem jafngildir 154.539 kr. á ári.

Lægstu gjöldin í Reykjavík
Miðað við 8 tíma (almennt gjald) eru lægstu gjöldin í Reykjavík, 25.963 kr. en þau hæstu í Garðabæ, 39.618 kr. Fyrir forgangshópa (8 tímar m. fæði) eru gjöldin lægst í Reykjavík. 17.259 kr. en hæst hjá Sveitarfélaginu Árborg 29.241 kr. Níu tíma vistun með fæði fyrir forgangshópa kostar mest í Kópavogi, 34.387 kr. en minnst í Reykjavík, 21.512 kr. en almennt gjald fyrir 9 tíma vistun er hæst í Fljótsdalshéraði, 46.770 kr. en lægst á Seltjarnarnesi, 29.249 kr.

8 tímar dýrastir í Garðabæ
Mikill munur er á leikskólagjöldum sveitarfélaganna en 53% munur er á hæstu og lægstu almennu gjöldunum, 8 tímum með fæði eða 13.655 kr á mánuði sem jafngildir 150.205 kr. á ári. Hæst eru gjöldin í Garðabæ 39.618 en þau hækkuðu um 3% um áramótin. Næst hæst eru þau á Fljótsdalshéraði, 38.783 kr. þar sem þau hækkuðu um 4,2% um áramót en þriðju hæst eru leikskólagjöldin á Akranesi, 37.170 kr. en þau hækkuðu um 3% um áramót.

Lægst eru gjöldin í Reykjavík, 25.963 þrátt fyrir 2,9% hækkun og næst lægst á Seltjarnarnesi, 27.180 kr. eftir 5% hækkun um áramótin. Mesta hækkunin var á Seltjarnarnesi en mesta lækkunin í Fjarðarbyggð, 4,1% sem er með sjöttu ódýrustu gjöldin.

Hæstu leikskólagjöldin fyrir forgangshópa hjá Sveitarfélaginu Árborg
Heildarmyndin breytist töluvert þegar gjöld fyrir forgangshópa eru skoðuð en meðal þeirra sem tilheyra þeim hópi eru einstæðir foreldrar, námsmenn og öryrkjar. Hæstu gjöldin fyrir þennan hóp miðað við 8 tíma með fæði eru hjá Sveitarfélaginu Árborg, 29.241 kr. eftir 3,61% hækkun um áramótin og næst hæstu gjöldin eru í Vestmanneyjum, 29.057 kr. eftir 3,81% hækkun. Reykjanesbær er með þriðju hæstu gjöldin eða 30 kr. lægri en Vestmanneyjar, 29.027 kr. eftir 2,99% hækkun. Mesta hækkunin milli ára hjá þessum hópi er á Seltjarnarnesi eða 5,41 % sem er þrátt fyrir það með næst lægstu gjöldin og næst mesta hækkunin er hjá Fljótsdalshéraði, 4,98% sem er með fjórðu hæstu gjöldin. Gjöldin lækka mest í Fjarðarbyggð um 5,35% og næst mest í Skagafirði um 5,34%. Munurinn á hæstu og lægstu gjöldum er 69% eða 11.982 kr. sem gerir 131.802 kr. á ári.

9 tímar 44% dýrari en 8 tímar í Kópavogi
Margir foreldrar nýta sér að geta haft börnin í 9 tíma á leikskóla til að auðveldara sé að samræma vistunartíma barna við vinnutíma og getur það jafnvel verið nauðsynlegt fyrir suma eins og einstæða foreldra. Níundi tíminn er hins vegar mjög dýr í mörgum tilfellum og getur hækkað leikskólagjöldin töluvert. Lægstu almennu gjöldin fyrir 9 tíma með fæði eru á Seltjarnarnesi, 30.685 kr. þrátt fyrir 4,9% hækkun en þau hæstu í Fljótsdalshéraði, 48.522 kr. eftir 3,7% hækkun.

Lægstu gjöldin (9 tímar m. fæði) fyrir forgangshópa eru í Reykjavík, 21.512 kr. (2,9% hækkun) en þau hæstu í Kópavogi, 34.387 kr. en þar hækkuðu gjöldin um 3,4% um áramót. Dýrasti níundi klukkutíminn er í Kópavogi á 14.472 kr. en gjöldin þar hækka um 44% við það að vera með barn í vistun í 9 tíma í stað 8 tíma. Ódýrastur er níundi tíminn í Skagafirði en þar kostar það einungis 3.066 kr. á mánuði að bæta níunda tímanum við.

Systkinaafslættir
Systkinaafslættir er eitt af því sem getur haft mikil áhrif ef fólk er með fleira en eitt barn á leikskóla. Afslátturinn er mismikill eftir sveitarfélögum eða frá 25-75% fyrir annað barn og 75-100% afsláttur fyrir þriðja barn.

Verðlagseftirlit ASÍ kannaði breytingar á gjaldskrám fyrir vistun og fæði í leikskólum hjá 16 stærstu sveitarfélögum landsins frá 1. janúar 2018 til 1. janúar 2019.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Inga Sæland herská – Kallar eftir stuðningi á þingpöllunum

Inga Sæland herská – Kallar eftir stuðningi á þingpöllunum
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Guðjón Auðunsson: Verðið á íslensku fasteignafélögunum er allt of lágt

Guðjón Auðunsson: Verðið á íslensku fasteignafélögunum er allt of lágt
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Björn Jón skrifar: Grýlur sem ýla hræðilega

Björn Jón skrifar: Grýlur sem ýla hræðilega
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Guðjón Auðunsson: Ef markmiðið er að fækka um eina kaffivél er sameiningin tilgangslaus

Guðjón Auðunsson: Ef markmiðið er að fækka um eina kaffivél er sameiningin tilgangslaus