Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins stundar nú grunnnámskeið í Slysavarnaskóla sjómanna. Þar er Helgi Seljan fréttamaður einnig, en hann er í leyfi hjá RÚV. Er Helgi í endurmenntun og birtir mynd af þeim kumpánum á Twitter í dag.
Í samtali við Fréttablaðið sagði Ásmundur að vel færi á með þeim, enda ætti hann ættingja frá Eskifirði sem honum þætti vænt um, en Helgi er ættaður að austan sjálfur.
Ásmundur sótti sjóinn í fyrrasumar á undanþágu en þarf að sitja slysavarnanámskeiðið til að „hafa þetta í lagi“.
Hann stundaði netagerð og sjómennsku frá 1970-1972 í Vestmannaeyjum og er því öllun hnútum kunnugur.
Við Ási erum bekkjarbræður í Slysavarnarskóla sjómanna! pic.twitter.com/MAGroJdRVn
— Helgi Seljan Jóhannsson (@helgiseljan) January 8, 2019