fbpx
Þriðjudagur 23.apríl 2024
Eyjan

Stuðningur við ríkisstjórnina fer minnkandi – 41,1 % fylgi

Ritstjórn Eyjunnar
Þriðjudaginn 18. september 2018 10:08

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stuðningur við ríkisstjórnina fer minnkandi en 41,1% sögðust styðja ríkisstjórnina nú samanborið við 41,7% í síðustu mælingu, samkvæmt nýrri könnun MMR sem framkvæmd var dagana 7.-12. september.

Fylgi Sjálfstæðisflokksins minnkaði um tæplega eitt prósentustig frá síðustu mælingu sem lauk 10. ágúst. Sjálfstæðisflokkurinn mældist með stuðning 21,3% landsmanna og er stærsti stjórnmálaflokkurinn á Alþingi.

Samfylkingin mældist með 19,8% fylgi sem er aukning um rúm þrjú prósentustig frá síðustu mælingu. Píratar mældust nú með 13,2% fylgi sem er nær óbreytt frá síðustu mælingu.

Athygli vekur að af stjórnarflokkunum er það aðeins VG sem sækir í sig veðrið frá síðustu könnun.

Fylgi Vinstri grænna mældist nú 11,1% og mældist 8,8% í síðustu könnun.
Fylgi Miðflokksins mældist nú 10,8% og mældist 10,3% í síðustu könnun.
Fylgi Framsóknarflokks mældist nú 8,1% og mældist 8,9% í síðustu könnun.
Fylgi Viðreisnar mældist nú 7,9% og mældist 8,7% í síðustu könnun.
Fylgi Flokks fólksins mældist nú 5,3% og mældist 7,8% í síðustu könnun.
Fylgi annarra flokka mældist 2,5% samanlagt.

Lagðar voru allt að þrjár spurningar fyrir svarendur um stuðning þeirra við stjórnmálaflokka. Allir voru spurðir spurningar 1: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?“. Þeir sem svöruðu „Veit ekki/óákveðin(n)“ við spurningu 1 voru því næst spurðir spurningar 2: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?“. Ef aftur var svarað „Veit ekki/óákveðin(n)“ þá voru þátttakendur að lokum spurðir spurningar 3: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“. Fjölda þeirra sem svaraði „einhvern hinna“ í spurningu 3 var skipt milli annarra flokka en Sjálfstæðisflokksins í sama hlutfalli og fylgi þeirra var skv. spurningum 1 og 2. Samtals voru 85,8% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (4,1%), myndu skila auðu (4,5%), myndu ekki kjósa (2,3%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (3,3%). Myndin sýnir niðurstöðu könnunar að viðbættum efri og neðri vikmörkum miðað við 95% öryggisbil ásamt samanburði við síðustu kannanir þar á undan.

Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR.
Álitsgjafar MMR eru valdir úr Þjóðskrá þannig að þeir endurspegli lýðfræðilega samsetningu þjóðarinnar á hverjum tíma.
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 953 einstaklingar, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 7. til 12. september 2018

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 2 dögum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að
Eyjan
Fyrir 5 dögum

„Vilt ekki að það sé eitt barn í fjölskyldunni sem er vanrækt á kostnað hinna“

„Vilt ekki að það sé eitt barn í fjölskyldunni sem er vanrækt á kostnað hinna“
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Guðjón Auðunsson: Áhyggjur af því að áhrif vaxtahækkana eigi eftir að bíta almenning alvarlega

Guðjón Auðunsson: Áhyggjur af því að áhrif vaxtahækkana eigi eftir að bíta almenning alvarlega