Gestir í Silfrinu í dag voru Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Rósa Björk Brynjólfsdóttir, Helga Vala Helgadóttir og Óli Björn Kárason. Þetta varð nokkuð löng umræða, enda margt sem bar á góma. Það er líka mikið á seyði í pólitíkinni nú á fyrstu dögum haustþings.
Skipulagsmál í miðbænum í Reykjavík, ósætti innan ríkisstjórnarinnar um heilbrigðismál, tillögur menntamálaráðherra um hvernig styrkja megi einkarekna fjölmiðla og draga úr auglýsingum á RÚV, hinn umdeildi orkupakki ESB og umfangsmikil landakaup erlendra auðmanna á Íslandi.
Þáttinn má sjá með því að smella hér.