fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Eyjan

Steingrímur J. Sigfússon er greiðslukóngur ársins – Sjáðu launahæstu þingmennina frá 2007 – 2018

Ritstjórn Eyjunnar
Miðvikudaginn 5. desember 2018 11:42

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Alþingi birti í gær upplýsingar um launagreiðslur þingmanna frá árinu 2007 – 2018  á heimasíðu sinni. Benedikt Jóhannesson, stofnandi Viðreisnar, hefur gert samantekt á launagreiðslum Alþingis til þingmanna yfir þetta tímabil. Tilgreinir hann fimm launahæstu þingmenn hvers árs fyrir sig. (Töfluna má sjá neðst í fréttinni)

Samkvæmt yfirlitinu var Steingrímur J. Sigfússon greiðslukóngur ársins 2008 og 2018. Árið 2008 þénaði hann 18.6 milljónir sem óbreyttur þingmaður VG. Sem forseti Alþingis þénaði hann 22, 6 milljónir það sem af er árinu 2018.

Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar, kemur næstur, með 22 milljónir það sem af er árinu.

Þórunn Egilsdóttir, þingflokksformaður Framsóknarflokksins, er í þriðja sæti með 20 milljónir það sem af er ári.

Þá kemur Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, þingflokksformaður VG með 19,6 milljónir og Lilja Rafney Magnúsdóttir, þingmaður VG, með 19,3 milljónir.

Landsbyggðarþingmenn ofarlega á blaði

Þingfararkaup, fastar greiðslur vegna búsetu og greiðslur vegna aksturs, flugferða og síma er innifalið í tölunum, en ekki ráðherralaun og kostnaður vegna ráðherra.

Samkvæmt yfirlitinu eru landsbyggðarþingmenn gjarnan ofarlega á blaði, ekki síst frá Norðaustur-kjördæmi:

„Arnbjörg Sveinsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokks var efst árið 2007. Steingrímur J. Sigfússon, þingmaður VG, er tvö ár greiðslukóngur, árin 2008 og 2018. Árni Johnsen, þingmaður Sjálfstæðisflokks, trónir á toppnum í þrjú ári í röð, 2009 til 2011. Þuríður Bachmann, þingmaður VG, fær mestar greiðslur árið 2012, Höskuldur Þórhallsson, þingmaður Framsóknar, er efstur árin 2013 og 2015, Einar Guðfinnsson Sjálfstæðisflokki er efstur árin 2014 og 2016 og árið 2017 fær Sigurður Ingi Jóhannsson mest í sinn hlut,“

segir Benedikt. Hann segir fróðlegt að sjá þróun hæstu greiðslna á föstu verðlagi ársins 2018, í ljósi umræðna um launahækkanir þingmanna. Hann segir einnig úrskurð kjararáðs hafa spillt andrúmslofti á vinnumarkaði.

Hæstu greiðslur til þingmanna

Benedikt bendir á að greiðslurnar hafa farið hækkandi að raungildi síðan 2009, en laun þingmanna hafi verið lækkuð eftir hrun. Þau hafi enn ekki náð sama verðgildi og árin 2007 og 2008:

„Kaupmáttur þeirra hefur aukist um nálægt 25% frá lægsta gildi, en rýrnað um tæplega 10% frá árinu 2008. Rétt er að vekja athygli á því að talað er um hæsta gildi, ekki meðaltal.“

 

Töfluna má sjá hér að neðan

2007 Nafn Greiðslur Flokkur
1 Arnbjörg Sveinsdóttir 16,5 Sjálfstæðis NA
2 Steingrímur J. Sigfússon 15,2 VG NA
3 Kristinn H. Gunnarsson 14,6 Frjálslyndir NV
4 Einar Már Sigurðarson 14,0 Samfylking NA
5 Sturla Böðvarsson 13,2 Sjálfstæðis NV Forseti
2008 Greiðslur (millj) Flokkur Kjörd.
1 Steingrímur J. Sigfússon 18,6 VG NA
2 Sturla Böðvarsson 17,2 Sjálfstæðis NV Forseti
3 Einar Már Sigurðarson 16,5 Samf. NA
4 Arnbjörg Sveinsdóttir 16,3 Sjálfstæðis NA
5 Kristinn H. Gunnarsson 16,3 Frjálsl. NV
2009 Greiðslur (millj) Flokkur Kjörd.
1 Árni Johnsen 15,4 Sjálfstæðis SU
2 Höskuldur Þórhallsson 14,4 Framsókn NA
3 Þuríður Backman 13,6 VG NA
4 Kristján Þór Júlíusson 13,5 Sjálfstæðis NA
5 Einar K. Guðfinnsson 13,4 Sjálfstæðis NV
2010 Greiðslur (millj) Flokkur Kjörd.
1 Árni Johnsen 16,1 Sjálfstæðis SU
2 Sigmundur Ernir Rúnarss 14,6 Samf. NA
3 Björn Valur Gíslason 14,4 VG NA
4 Ásmundur Einar Daðas 14,2 VG NV
5 Ásta R. Jóhannesdóttir 14,2 Samf. REY Forseti
2011 Greiðslur (millj) Flokkur Kjörd.
1 Árni Johnsen 15,8 Sjálfstæðis SU
2 Ragnheiður E. Árnadóttir 15,6 Sjálfstæðis SU
3 Sigmundur Ernir Rúnarss 15,2 Samf. NA
4 Gunnar Bragi Sveinsson 15,1 Framsókn NV
5 Kristján L. Möller 14,7 Samf. NA
2012 Greiðslur (millj) Flokkur Kjörd.
1 Þuríður Backman 19,1 VG NA
2 Gunnar Bragi Sveinsson 19,1 Framsókn NV
3 Sigmundur Ernir Rúnarss 18,7 Samf. NA
4 Árni Johnsen 18,0 Sjálfstæðis SU
5 Ásta R. Jóhannesdóttir 17,8 Samf. REY Forseti
2013 Greiðslur (millj) Flokkur Kjörd.
1 Höskuldur Þórhallsson 19,7 Framsókn NA
2 Einar K. Guðfinnsson 18,8 Sjálfstæðis NV Forseti
3 Ásmundur Einar Daðas 17,3 Framsókn NV
4 Unnur Brá Konráðsdóttir 17,0 Sjálfstæðis SU
5 Árni Páll Árnason 16,8 Samf. SV
2014 Greiðslur (millj) Flokkur Kjörd.
1 Einar K. Guðfinnsson 21,5 Sjálfstæðis NV Forseti
2 Höskuldur Þórhallsson 19,3 Framsókn NA
3 Valgerður Gunnarsdóttir 18,3 Sjálfstæðis NA
4 Ásmundur Einar Daðas 17,9 Framsókn NV
5 Unnur Brá Konráðsdóttir 17,0 Sjálfstæðis SU
2015 Greiðslur (millj) Flokkur Kjörd.
1 Höskuldur Þórhallsson 22,3 Framsókn NA
2 Einar K. Guðfinnsson 20,9 Sjálfstæðis NV Forseti
3 Valgerður Gunnarsdóttir 20,2 Sjálfstæðis NA
4 Þórunn Egilsdóttir 18,5 Framsókn NA
5 Árni Páll Árnason 18,0 Samf SV
2016 Greiðslur (millj) Flokkur Kjörd.
1 Einar K. Guðfinnsson 22,9 Sjálfstæðis NV Forseti
2 Þórunn Egilsdóttir 21,7 Framsókn NA
3 Valgerður Gunnarsdóttir 21,7 Sjálfstæðis NA
4 Höskuldur Þórhallsson 19,8 Framsókn NA
5 Lilja Rafney Magnúsd. 19,1 VG NV
2017 Greiðslur (millj) Flokkur Kjörd.
1 Sigurður Ingi Jóhannsson 26,0 Framsókn SU
2 Logi Einarsson 25,6 Samf. NA
3 Unnur Brá Konráðsdóttir 25,0 Sjálfstæðis SU Forseti
4 Steingrímur J. Sigfússon 24,0 VG NA
5 Þórunn Egilsdóttir 23,3 Framsókn NA
2018 (11 mán) Greiðslur (millj) Flokkur Kjörd.
1 Steingrímur J. Sigfússon 22,6 VG NA Forseti
2 Logi Einarsson 22,0 Samf. NA
3 Þórunn Egilsdóttir 20,0 Framsókn NA
4 Bjarkey Olsen Gunnarsd. 19,6 VG NA
5 Lilja Rafney Magnúsd. 19,3 VG NV
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt